Framsókn telur hugmyndir um flugvöll í Hvassahrauni óraunhæfar

Framsóknarflokkurinn hafnar flugvelli í Hvassahrauni og telur hagkvæmara að efla Reykjavíkurflugvöll og Keflavíkurflugvöll í þeirra hlutverkum.

Sigurður Ingi Jóhannsson er formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhannsson er formaður Framsóknarflokksins.
Auglýsing

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn telur hug­myndir um flug­völl í Hvassa­hrauni óraun­hæfar og telur hag­kvæmara að efla Reykja­vík­ur­flug­völl og Kefla­vík­ur­flug­völl í þeirra hlut­verk­um. Þetta kemur fram í við­bót við ályktnu um sam­göngu­mál sem Jóhann Frið­rik Frið­riks­son, efsti maður á fram­boðs­lista flokks­ins í Reykja­nesbæ í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um, lagði fram á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins í dag og var sam­þykkt.

Jóhann Frið­rik greinir frá þessu í stöðu­upp­færslu á Face­book-­síðu sinni. Þar segir hann: „Mið­stöð inn­an­lands­flugs á Íslandi er í Reykja­vík og milli­landa­flugs á Suð­ur­nesj­um. Svæð­is­skipu­lag Suð­ur­nesja sem sam­þykkt hefur verið af öllum sveit­ar­fé­lögum svæð­is­ins gerir ekki ráð fyrir flug­starf­semi í Hvassa­hrauni. Hvassa­hraun liggur á vatns­vernd­ar­svæði á svoköll­uðu fjar­svæði vatns­verndar fyrir Suð­ur­nes. Við skil­grein­ingu fjar­svæðis er litið til þátta eins og mis­gengis og sprungna þar sem gæta þarf sér­stakrar var­úðar og því eru fram­kvæmdir þar tak­mörkum sett­ar. Áætlað er að flug­vall­ar­fram­kvæmdir í Hvassa­hrauni geti kostað yfir 200 millj­arða króna. Fjár­munum er mun betur varið til vega­mála þar sem stór­átaks er þörf.“

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra og er því æðsti yfir­maður sam­göngu­mála í land­inu.

Auglýsing

Rögn­u­­nefnd­in, stýri­hópur rík­­is­ins, Reykja­vík­­­ur­­borgar og Icelandair Group sem hafði það mark­mið að kanna og meta nokkra staði fyrir nýjan inn­­an­lands­flug­­völl á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu, skil­aði skýrslu sinni árið 2015. Í nið­ur­stöðu hennar kom fram að hag­­kvæm­­ast sé að byggja nýjan flug­­­völl í Hvassa­hrauni, sem er á mörkum Hafn­­ar­fjarðar og Voga. Nefndin lagði til að flug­­vall­­ar­skil­yrði í Hvassa­hrauni yrðu full­könnuð með nauð­­syn­­legum rann­­sóknum og að sam­hliða yrði náð sam­komu­lagi um rekstr­­ar­ör­yggi Reykja­vík­­­ur­flug­vallar í Vatns­­­mýri verði tryggt á meðan að nauð­­syn­­legur und­ir­­bún­­ingur og, eftir atvik­um, fram­­kvæmdir fari fram. 

À flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins í dag lagði ég fram eft­ir­far­andi við­bót við ályktun um sam­göngu­mál og var hún­...

Posted by Johann Fri­d­rik Fri­d­riks­son on Sunday, March 11, 2018

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent