Herdís Fjeldsted tekur sæti í stjórn Arion banka

Breytingar hafa verið gerðar á stjórn Arion banka að undanförnu, en undirbúningur fyrir skráningu bankans og útboð er nú í gangi.

Herdís dröfn fjelstedt
Auglýsing

Breyt­ingar verða gerðar á stjórn Arion banka á kom­andi aðal­fundi bank­ans, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. 

Í ljósi þess að íslenska ríkið hefur selt hlut sinn í bank­an­um, þá verður Banka­sýsla rík­is­ins ekki með full­trúa í stjórn, og verður stjórn­ar­mönnum fækkað úr átta í sjö.

Kirstín Þ. Flyger­ing hefur verið full­trúi rík­is­ins í stjórn og hættir hún í stjórn­inn­i. 

Auglýsing

Her­dís Dröfn Fjeld­sted, sem hefur verið fram­kvæmda­stjóri Fram­taks­sjóðs Íslands, sem nú hefur verið ákveðið að slíta, mun taka sæti í stjórn­inni en Þóra Hall­gríms­dótt­ir, sem setur hefur í stjórn bank­ans frá því árið 2013, og sem vara­maður í stjórn á árunum 2011 til 2013, mun hætta sem stjórn­ar­mað­ur. 

Her­dís Dröfn stað­festi það við Kjarn­ann í dag, að hún myndi taka sæti í stjórn bank­ans, en aðal­fundur bank­ans fer fram 15. mars.

Stutt er síðan Kaup­skil, félag sem Kaup­þing stýrir fyrir hönd eig­enda þess, gerði breyt­ingar í stjórn­inni þegar Guð­rún John­sen fór út úr stjórn­inni og Stein­unn Kristín Þórð­ar­dótt­ir, sem stýrði meðal ann­ars starf­semi Glitnis í London á útrás­ar­tíma bank­ans, tók sæti í stjórn­inni í hennar stað. 

Ekki hefur verið ákveðið að gera frek­ari breyt­ing­ar, að svo stödd­u. 

Í stjórn­inni munu því sitja Eve Cader­balk, sem er stjórn­ar­for­mað­ur, Brynjólfur Bjarna­son, Jakob Ásmunds­son, John P. Madden og Måns Höglund, auk Her­dísar og Stein­unn­ar.

Unnið er að und­ir­bún­ingi skrán­ingar og útboðs. 

Íslenska ríkið seldi 13 pró­sent hlut sinn í bank­anum fyrir 23,4 millj­arða króna, á grund­velli kaup­réttar sem Kaup­þing átti á hlut­un­um, sam­kvæmt hlut­hafa­sam­komu­lagi frá árinu 2009. 

Eigið fé bank­ans í lok árs í fyrra nam 225,7 millj­örðum króna og heild­ar­eignir 1.147,8 millj­örð­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent