Nemendum í 9. bekk gefst kostur á að þreyta að nýju könnunarpróf í ensku og íslensku, en margir þeirra tóku próf við óviðunandi aðstæður í liðinni viku. Þátttaka í könnunarprófunum verður valkvæð, samkvæmt ákvörðun Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra. Stjórnendur í hverjum skóla ákveða hvort þeir leggja prófin fyrir nemendur sína í vor eða haust, að því er segir í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
„Þeir nemendur sem luku prófunum í liðinni viku fá afhentar niðurstöður úr þeim. Öllum býðst svo að þreyta sambærileg könnunarpróf að nýju, enda er það lögbundin skylda menntamálayfirvalda að bjóða nemendum mat á námsstöðu sinni. Þeir nemendur sem kjósa, að höfðu samráði við forráðamenn, að taka ekki umrædd próf aftur verða leystir undan prófskyldu. Þessi leið var valin þar sem hún er talin sanngjörnust fyrir nemendur. Grunnskólalög heimila undanþágu frá prófskyldu samræmdra prófa, ef gildar ástæður eru til staðar. Þær eru tilgreindar í reglugerð, sem nauðsynlegt er að breyta svo þær aðstæður sem nú eru uppi teljist gildar. Vinna við reglugerðarbreytinguna er þegar hafin,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir í tilkynningu að mikilvægt hafi verið að eyða óvissu um framhald málsins, og virðing sé borin fyrir skoðunum nemenda, kennara og foreldra. „Skoðanir nemenda, foreldra, kennara og skólastjórnenda eru ólíkar og ég hef t.a.m. fengið fjölmörg bréf frá fólki sem ýmist vill fella prófin niður, leggja þau fyrir alla nemendur að nýju eða fara bil beggja. Það er ljóst að engin ein niðurstaða sættir öll sjónarmið í málinu en það er mikilvægt að ákvörðun ráðuneytisins sé í fullu samræmi við lög og sanngjörn gagnvart nemendum. Réttur nemenda verður ekki tekinn af þeim og ég er vongóð um að sátt geti skapast um þessa leið,“ segir Lilja.
Á fundi sem ráðherra hélt í morgun með lykilaðilum úr skólasamfélaginu komu fram ólík sjónarmið. Skoðun sumra var að ógilda ætti prófin þetta árið og ekki afhenda nemendum niðurstöður þeirra, segir í tilkynningu. Þrátt fyrir ólík sjónarmið sammæltust fundarmenn um að vinna að farsælli lausn í kjölfar ákvörðunar ráðherra.
„Fundarmenn voru einnig sammála um að gera nauðsynlegar breytingar á reglugerð, svo niðurstöður úr samræmdum könnunarprófum verði ekki notaðar við mat á umsóknum nemenda um framhaldsskólavist að loknu grunnskólanámi. Niðurstöðunum er því ætlað að gefa nemendum sjálfum vísbendingu um eigin námsstöðu, svo þeir geti nýtt sem best síðasta ár sitt í grunnskóla til að auka hæfni sína í tilteknum greinum,“ segir í tilkynningunni.