Stýrivextir Seðlabanka Íslands verða áfram 4,25 prósent samkvæmt ákvörðun Peningastefnunefndar hans sem kynnt var í morgun. Í tilkynningu frá Seðlabankanum segir að Már Guðmundsson seðlabankastjóri muni á kynningafundi um vaxtaákvörðunina, sem hefst klukkan 10, koma með yfirlýsingu um sérstaka bindiskyldu.
Í yfirlýsingu peningastefnunefndar segir að verðbólga í febrúar hafi verið 2,3 prósent í febrúar og minnkaði úr 2,4 prósent mánuðinn áður. „Undirliggjandi verðbólga hjaðnaði einnig lítillega. Áfram hefur dregið úr árshækkun húsnæðisverðs og áhrif hærra gengis krónunnar hafa dvínað. Líklegt er að þessi þróun haldi áfram á næstunni. Gengi krónunnar hefur hækkað frá síðasta fundi peningastefnunefndar og gjaldeyrismarkaðurinn hefur áfram verið í ágætu jafnvægi. Verðbólguhorfur hafa lítið breyst frá síðasta fundi nefndarinnar en verðbólguvæntingar virðast hafa hækkað lítillega. Of snemmt er þó að álykta um hvort kjölfesta þeirra við verðbólgumarkmið bankans hafi veikst.
Hátt raungengi hefur hægt á vexti útflutnings og horfur eru á minnkandi spennu í þjóðarbúskapnum. Eigi að síður er áfram þörf fyrir peningalegt aðhald til að halda aftur af örum vexti innlendrar eftirspurnar. Nýleg ákvörðun um að segja ekki upp kjarasamningum dregur úr hættu á ósjálfbærum launahækkunum til skamms tíma litið en undirliggjandi spenna á vinnumarkaði er enn til staðar.“
Verðbólga hefur verið undir 2,5 prósent markmiði Seðlabanka Íslands í 49 mánuði samfleytt.