Meirihlutinn í Reykjavík heldur velli samkvæmt nýrri könnun Viðskiptablaðsins og fengi 13 af 23 borgarfulltrúum en minnihlutinn tíu.
Samfylkingin, með Dag B. Eggertsson borgarstjóra í broddi fylkingar, mælist með 29,9 prósent fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn, þar sem Eyþór Arnalds er oddviti, mælist með litlu minna, eða 29 prósent.
Píratar fengju 13%, VG 10,3%, Framsóknarflokkurinn 2,9%, Viðreisn 6,3%, Flokkur fólksins 3,1% og Miðflokkurinn 4%.
Samkvæmt könnuninni er meirihluti Samfylkingar, Pírata og VG með 53,2% atkvæða.
Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylking fengju samkvæmt þessu 8 borgarfulltrúa hvor, Píratar 3 og VG 2.
Miðflokkurinn og Viðreisn myndu fá einn borgarfulltrúa hvor flokkur, samkvæmt könnuninni.