Lindarhvoll þarf að afhenda gögn um sölu á hlut ríkisins í Klakka

Félagið Lindarhvoll, sem er í eigu ríkisins, þarf að afhenda gögn um söluferlið á hlut í Klakka samkvæmt nýjum úrskurði.

Fjármálaráðuneytið
Auglýsing

Félag í eigu þriggja stjórn­enda Klakka, eign­ar­halds­fé­lags sem held­ur utan um 100 pró­senta hlut í eigna­leigu­fyr­ir­tæk­in­u Lykli, átti næst­hæsta til­boðið í tæp­lega 18 pró­senta hlut rík­is­ins í Klakka þegar hlut­ur­inn var boð­inn til sölu haustið 2016. Um­rætt félag, Ása­flöt, vildi ekki að ­upp­lýst yrði um þátt­töku þess í sölu­ferl­in­u og bar því við að Lind­ar­hvoll, ­fé­lag sem hélt utan um stöð­ug­leika­eign­ir ­sem voru fram­seldar rík­in­u og sá um sölu­ferlið, hafði heitið því ­trún­að­i. 

Sam­kvæmt nýjum úrskurði úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál, þarf Lind­ar­hvoll að veita aðgang að upp­lýs­ingum um sölu­ferlið á hlut rík­is­ins í Klakka, og segir í úrskurð­inum að Lind­ar­hvoll hafi ekki haft heim­ild til þess heita áhuga­sömum kaup­endum trún­aði.

Frá þessu er greint í Mark­aðnum í dag, en úrskurð­ur­inn hefur ekki verið birtur á vef úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál.

Auglýsing

Af þeim þremur félögum sem buðu í hlut rík­is­ins í Klakka tengdust þannig tvö félög stjórn­end­um ­eign­ar­halds­fé­lags­ins, en Magn­ús Schev­ing Thor­steins­son, for­stjóri Klakka, er eini stjórn­ar­maður BLM fjár­fest­inga, sem var hæst­bjóð­and­i, og jafn­framt einn af eig­endum Ásaflat­ar ­sem átti næst­hæsta til­boðið í hlut rík­is­ins, að því er segir í Mark­aðn­um. 

Félagið BLM fjár­fest­ing­ar, dótt­ur­fé­lag vog­un­ar­sjóðs­ins Burlington Loan Mana­gement, átti hæsta til­boðið í 17,7 pró­senta hlut rík­is­ins í Klakka en það hljóð­aði upp á 505 millj­ón­ir króna. Ása­flöt bauð 502 millj­ónir í hlut­inn en þriðja til­boð­ið, sem hljóð­ aði upp á 501 milljón króna, barst frá Frigus II í eigu Ágústs og Lýðs Guð­munds­sona, og Sig­urðar Val­týs­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra Exista. 

Ágúst og Lýður Guðmundssyni, stærstu eigendur Bakkavarar.

„For­svars­menn Frigusar óskuð­u eftir því við Lind­ar­hvol að félag­ið ­fengi aðgang að fyr­ir­liggj­andi gögn­um um sölu­ferlið en þeirri beiðn­i var hafn­að. Málið kom til kasta úr­skurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál ­sem féllst í síð­ustu viku á nær allar beiðnir Frigusar. Á meðal gagna ­sem Lind­ar­hvoli ber nú að af­henda Frigusi eru fund­ar­gerð­ir ­stjórnar Lind­ar­hvols, ­sam­skipt­i hæsta­rétt­ar­lög­manns­ins ­Stein­ars Þór­s Guð­geirs­son­ar, þáver­and­i ­stjórn­ar­manns Klakka sem tók auk þess við til­boð­u­m í eign­ar­hlut­inn fyrir hönd ­rík­is­ins, og stjórnar Lind­ar­hvols, ­sam­skipti Lind­ar­hvols og til­boðs­gjaf­anna þriggja og afrit af þeim þrem­ur til­boðum sem bárust,“ segir í Mark­aðnum

Sig­urður segir í sam­tali við Mark­að­inn, að afar illa hafi gengið að fá sjálf­sagðar upp­lýs­ingar um sölu­ferlið frá Lind­ar­hvoldi. „Þarna var verið að selja eig­ur ­ríks­is­ins til sér­val­inna aðila. Ekki var ­reynt að hámarka sölu­verðið og því er þetta mál álits­hnekkir fyrir stjórn­ Lind­ar­hvols,“ segir Sig­urður í sam­tali við Mark­að­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent