Efnahagur RÚV styrkist - Sala á byggingarrétti skipt sköpum

Rekstrarafkoma var jákvæð um 321 milljón í fyrra. Miklu munar um sölu á byggingarrétti, en hagnaður af sölu á byggingarlóðum hefur styrkt stöðu RÚV langt umfram áætlanir félagsins.

rúv
Auglýsing

Afkoma RÚV var jákvæð um 321 milljón í fyrra, fyrir skatta, og munar þar ekki síst um 174 millj­óna króna hagnað vegna sölu á bygg­ing­ar­rétti. Hagn­aður vegna sölu af bygg­ing­ar­réti var að mestur færðu í árs­reikn­ingi vegna árs­ins 2016, en tekjur vegna söl­unnar voru langt um meiri en „var­legar áætl­an­ir“ RÚV gerðu ráð fyr­ir. „Tekjur af þess­ari sölu byggj­ast á end­an­legu bygg­inga­magni á lóð­inni og lá það fyrir í byrjun árs 2018. Heild­ar­sölu­verð er 1.966 m.kr., sem er umtals­vert meira en var­legar áætl­anir RÚV höfðu gert ráð fyrir í upp­hafi. Mark­mið RÚV með sölu bygg­ing­ar­rétt­ar­ins var að greiða niður skuldir félags­ins og hefur það gengið eftir og leitt til mestu skulda­lækk­unar í sögu félags­ins. Félagið hefur haldið áfram nið­ur­greiðslu skulda eftir að loka­greiðslur bár­ust í árs­byrjun 2018 og hefur einnig ráð­stafað hagn­aði árs­ins af reglu­legri starf­semi með sama hætti. Eftir sem áður er félagið mikið skuld­sett,“ segir í til­kynn­ingu félags­ins til Kaup­hall­ar.

Töluverður viðsnúningur hefur orðið á rekstri RÚV, eftir mikinn rekstrarvanda. Sala á byggingarrétti hefur vegið þungt í þeim viðsnúningi.

Rekstr­ar­gjöld án afskrifta námu 5,6 millj­örðum króna en 5,6 millj­örðum árið 2016. 

Auglýsing

Afskriftir voru 316 millj­ónir sam­an­borið við 308 millj­ónir árið 2016. 

Heild­ar­eignir félags­ins í lok árs 2017 námu 8,4 millj­örðum króna, eigið fé var 2,2 millj­arðar króna  og eig­in­fjár­hlut­fall 26,1 pró­sent en var það var 23,8 pró­sent í lok árs 2016.  

Eig­in­fjár­hlut­fall hefur hækkað mikið að und­an­förnu en það var 5,5 pró­sent í lok rekstr­ar­árs­ins 2013-2014, að því er segir í til­kynn­ingu félags­ins.

Stöðu­gildi voru að með­al­tali 260 á árinu en fjöldi þeirra hefur verið svip­aður frá árinu 2015 eftir mikla fækkun á miss­er­unum þar á und­an. „Út­varps­gjald var lækkað á nokk­urra ára tíma­bili ásamt því að mögu­leikar á öflun tekna í gegnum sölu aug­lýs­inga og kostana var tak­mark­að­ur,“ segir í til­kynn­ing­unni.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent