„Við misstum líka tökin þegar atburðirnir voru komnir af stað“

Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi formaður Viðreisnar og fjármálaráðherra, telur að margir möguleikar hafi verið í kortunum eftir að Björt framtíð sleit ríkisstjórnarsamstarfinu.

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra 7DM_3034_raw_170614.jpg
Auglýsing

Bene­dikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og for­maður Við­reisn­ar, seg­ist ekki hafa verið sáttur við hvernig Björt fram­tíð lauk stjórn­ar­sam­starf­inu á sínum tíma. Þetta kom fram í við­tali við Krist­ján Krist­jáns­son í við­tals­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morg­un. 

Bene­dikt segir atburða­rás­ina vera dæmi um það þegar fólk missir stjórn á kring­um­stæð­unum vegna reynslu­leys­is. Hann telur að Við­reisn hefði ekki átt að krefj­ast kosn­inga eftir stjórn­ar­slit­in, heldur reyna að mynda minni­hluta­stjórn eða alla­vega gera hlut­ina öðru­vísi. „Við hefðum átt að ræða hlut­ina betur við Bjarna [Bene­dikts­son],“ segir hann og bætir við að þau í Við­reisn hafi misst tökin þegar atburða­rásin var komin af stað. 

Betra hefði verið ef þau hefðu keypt sér tíma, að hans mati, en hann segir að margir mögu­leikar hafi verið í stöð­unni og að þau hefðu átt að láta á það reyna, fyrir stöð­ug­leika í land­inu. Bene­dikt seg­ist þó ekki vita hvort ný stjórn hefði lifað af aðra krísu.

Auglýsing

Óttar Proppé, Bjarni Benediktsson og Benedikt Jóhannesson. Mynd: Birgir Þór

Í við­tal­inu talar Bene­dikt um vin­skap hans og Ótt­ars Proppé, fyrr­ver­andi for­manns Bjartrar fram­tíð­ar, en hann segir að Óttar sé ein­stakur mað­ur, skemmti­legur og yfir­veg­að­ur. „Ég tel að það hafi verið mikil gæfa að kynn­ast honum og gaman að vinna með hon­um,“ segir hann og bætir því við að ekki hafi orðið vin­slit þegar flokk­arnir hættu sam­starfi í rík­is­stjórn. 

Varð­andi starfið á þing­inu segir Bene­dikt að honum hafi ekki fund­ist það sér­stak­lega skemmti­legt. „Menn eru stöðugt að reyna að klekkja á hver öðr­um. Ég á erfitt með að gera lítið úr fólki,“ segir hann. Aftur á móti hafi verið gaman að vera for­maður flokks og ráð­herra þar sem hann segir að hann hafi haft tæki­færi til að koma góðu til leiða. Hann segir jafn­framt að inn í þing­nefnd­unum sé unnið gott starf, þar sé ekki þetta leik­rit sem á sér stað inn í þingsaln­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent