Meiri hækkun á gengi krónunnar „áhættusöm“

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, sagði stöðu efnahagsmála á Íslandi um margt góða. Hann ræddi meðal annars um breytingar á fjármálaþjónustu, og sagði þá umræðu vera rétt að byrja.

Már Guðmundsson
Auglýsing

Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, sagði í ræðu sinni á 56. árs­fundi Seðla­banka Íslands í dag, að nú væri svo komið að frek­ari hækkun á raun­gengi krón­unnar gæti verið áhættu­söm fyrir íslenska hag­kerf­ið.

Krónan hefur styrkst hratt á und­an­förnum miss­erum, sam­hliða örum vexti ferða­þjón­ust­unnar og miklum efna­hags­legum umsvifum á Íslandi. Banda­ríkja­dalur kostar nú 98,95 krónur og evra 121 krónu.

Sem dæmi kost­aði Banda­ríkja­dalur tæp­lega 140 krónur fyrir þremur árum og evra tæp­lega 150 krón­ur. „Bú­hnykkirnir sem gerðu okkur mögu­legt að vaxa hratt og halda verð­bólgu lít­illi á sama tíma eru nú að fjara út. Hækkun gengis krón­unnar átti stóran þátt í að laga þjóð­ar­búið að þessum búhnykkj­um. Seðla­bank­inn beitti hins vegar inn­gripum á gjald­eyr­is­mark­aði og sér­stakri bind­ingu á fjár­magnsinn­streymi til að koma í veg fyrir ofris krón­unn­ar. Nú er hins vegar svo komið að umtals­verð frek­ari hækkun raun­gengis væri áhættu­söm,“ sagði Már.

Auglýsing

Hann kom víða við í sinni ræðu, og sagði meðal ann­ars að nú væru aðstæður til að taka loka­skrefið við losun fjár­magns­hafta. „Það er mat Seðla­bank­ans að efna­hags­legar for­sendur séu til að taka loka­skrefið í losun fjár­magns­hafta. Það á líka við um aflandskrónur en þær nema nú um 3½% af lands­fram­leiðslu en voru rúm 40% eftir að fjár­magns­höft voru fyrst sett á undir árs­lok 2008. Það verður hins vegar ekki gert nema með laga­breyt­ing­u,“ sagði Már.

Seðla­bank­inn hafi frum­kvæði að sam­starfi

Í ræð­unni kom hann einnig inn á þær miklu breyt­ingar sem nú væri að verða á fjár­mála­þjón­ustu, meðal ann­ars með nýjum tækni­lausnum og breyt­ingum á reglu­verki. Hann sagði Seðla­bank­ann ætla að beita sér fyrir auknu sam­starfi aðila á vinnu­mark­aði um þessi mál, með það að mark­miði að tryggja yfir­sýn og öryggi í fjár­mála­kerf­inu. „Ég ætla ekki að bleyta púðrið of mikið hér en vil þó nefna örfá meg­in­at­riði sem halda verður til haga í þess­ari umræðu. Þau eru í fyrsta lagi mik­il­væg­i ­sam­tíma­upp­gjörs sem eykur skil­virkni og öryggi. Það hefur ein­kennt greiðslu­miðlun hér á landi í einn og hálfan ára­tug og þangað eru aðrar þjóðir að ­reyna að stefna. Það er því lyk­il­at­riði að varð­veita það í þeim breyt­ingum sem nú standa yfir. Í öðru lagi er það mik­il­vægi þess að halda aftur af kostn­aði í inn­lendri greiðslu­miðl­un. Nýjar og fjöl­breytt­ari lausnir sem t.d. vinna beint með­ grunn­inn­viði fjár­mála­kerf­is­ins eins og inn­stæður í bönkum og kerfi Reikni­stofu ­bank­anna gætu stuðlað að þessu. Í þriðja lagi er það mik­il­vægi þess að ekki sé hægt að stöðva inn­lenda greiðslu­miðlun í gegnum erlend inn­grip af ein­hverju tagi. Í fjórða lagi er það að til séu vara­leiðir í kerf­inu ef eitt­hvað fer úrskeið­is ­sem gæti kallað á vissa fjölbreytni í greiðslu­miðlun sem að hluta nýtt­i mis­mun­andi tækni. Hér gæti raf­króna m.a. komið til sög­unn­ar. Hún vekur hins ­vegar stórar spurn­ingar sem þarf að ræða og lúta að mögu­leikum almenn­ings til­ að nota raf­ræna kröfu á Seðla­bank­ann og þar með óbeint á ríkið sem 8 greiðslu­miðil í stað inn­stæðu í bönkum og þær afleið­ingar sem það gæti haft á hlut­verk og stöð­ug­leika banka­kerf­is­ins. Þetta verður spenn­andi umræða og hún­ er rétt að hefjast,“ sagði Már.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent