Geir Þorsteinsson mun leiða framboð Miðflokksins í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningum. Geir er fyrrverandi formaður KSÍ en því embætti gegndi hann árin 2007 til 2017.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum.
Í henni kemur jafnframt fram að Geir hafi áratuga reynslu á sviði stjórnunar, fjármála, reksturs og félagsmála. Hann hafi meðal annars starfað að fjölbreyttum verkefnum innan knattspyrnuhreyfingarinnar frá 1981 og í Knattspyrnusambandi Íslands frá 1992, sem framkvæmdastjóri KSÍ 1997 til 2007 og eins og áður segir formaður KSÍ 2007 til 2017. Hann hafi setið í nefndum fyrir Knattspyrnusamband Evrópu UEFA frá 1998 og Alþjóða knattspyrnusambandið FIFA frá 2007 og sinni hann nú sérstökum verkefnum fyrir Knattspyrnusamband Evrópu.
Geir segir að eitt stærsta verkefnið á kjörtímabilinu verði að lækka álögur á bæjarbúa og bæta þjónustu bæjarins við íbúana. „Við viljum ná betri árangri í fjármálum Kópavogsbæjar þannig að lækka megi útsvarið úr 14,48 prósent í 14 prósent á kjörtímabilinu. Við leggjum áherslu á að í menntamálum standi nemendum til boða kennsla eins og best gerist ásamt því að vinna að stofnun framhaldsskóla í efri byggðum bæjarins og að bæjarbúar á öllum aldri fái notið fjölbreyttra menningar- og listviðburða og líflegs íþróttalífs í bænum, sér til skemmtunar og heilsubótar,“ segir hann.
Miðflokkurinn mun kynna ítarlega stefnu sína og framboðslista á næstunni, segir í tilkynningunni.