Ríkið heldur áfram að lækka skuldir

Heildarskuldir ríkissjóðs nema 866 milljörðum króna eftir að skuldir voru greiddar niður.

Bjarni Benediktsson
Auglýsing

Rík­is­sjóður keypti í vik­unni eigin skulda­bréf af Seðla­banka Íslands sam­tals að fjár­hæð 27 millj­arða króna. 

Eftir við­skiptin hafa skuldir rík­is­ins lækk­að, og eru heild­ar­skuldir nú 866 millj­arðar króna, eða um 32 pró­sent af árlegri lands­fram­leiðslu. Það er með allra minnsta móti, sé horft til stöðu rík­is­sjóða víða um heim, en und­an­farin ár hefur skulda­staða rík­is­sjóðs batnað veru­lega, sam­hliða sterk­ari efna­hags­stöðu og stöðu­leika­samn­ingum við slitabú hinna föllnu banka.

Kaupin voru í skulda­bréfa­flokk­unum RIKH 18, fyrir um 4,7 millj­arða að nafn­virði, og í flokknum RIKB 19, fyrir 21,6 millj­arða að nafn­virði, en upp­gjörið fór fram í dag.

Auglýsing

Heild­ar­kaup­verð bréf­anna nemur því 27,3 millj­örðum króna, en kaupin voru fjár­mögnuð með inn­stæðum rík­is­sjóðs hjá Seðla­banka Íslands og með lækkun á almennri sjóðs­stöðu.

Hrein staða rík­is­sjóðs reiknuð á grund­velli laga um opin­ber fjár­mál, þ.e. þegar sjóðir og inn­stæður eru dregnar frá heild­ar­skuld­um, nemur eftir við­skiptin um 724 millj­örðum króna, eða sem nemur um 27% af árlegri lands­fram­leiðslu .

Hér má sjá hvernig skuldir hins opinbera hafa þróast, og hvernig horfurnar eru fyrir næstu ár. Árið 2023 verða skuldirnar komnar í um 20 prósent af landsframleiðslu.

Á und­an­förnum árum hefur skulda­staða rík­is­sjóðs styrkst hratt, en hæstar voru skuld­irn­ar, sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu, skömmu eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins haustið 2008. Á árunum 2009 og 2010 ruku þær upp, en frá þeim tíma hafa þær lækk­að, og veru­lega hratt frá árinu 2012.





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent