Vilja afnema fjöldatakmarkanir á útgefnum atvinnuleyfum til leigubifreiðaaksturs

Starfshópur á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins leggur til að fjöldatakmarkanir verði afnumdar á útgefnum atvinnuleyfum til leigubifreiðaaksturs og að fallið verði frá lögbundinni stöðvarskyldu.

7DM_4154_raw_1612.JPG
Auglýsing

Rétt er að afnema fjölda­tak­mark­anir á útgefnum atvinnu­leyfum til leigu­bif­reiða­akst­urs og falla frá lög­bund­inni stöðv­ar­skyldu. Þetta kemur meðal ann­ars fram skýrslu starfs­hóps sem skip­aður var á vegum sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins í októ­ber á síð­asta ári til að end­ur­skoða í heild reglu­verk um leigu­bif­reiða­akstur á Íslandi

Þá leggur starfs­hóp­ur­inn til að starf­semi leigu­bif­reiða verði háð skil­yrðum sem eiga að tryggja öryggi og gæði þjón­ust­unn­ar. Tvenns konar leyfi verði til stað­ar, þ.e. atvinnu­leyfi, sem er leyfi til að aka leigu­bif­reið, og rekstr­ar­leyfi, sem er leyfi til að reka eina leigu­bif­reið.

Sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra hefur með hlið­sjón af til­lögum starfs­hóps­ins tekið ákvörðun um að í ráðu­neyt­inu skuli hefja und­ir­bún­ing að frum­varpi til nýrra laga um leigu­bif­reiðar með það að mark­miði að leggja það fram á haust­þingi á Alþingis 2019.

Auglýsing

Í frétt sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins segir að til­efni end­ur­skoð­un­ar­innar hafi ann­ars vegar verið frum­kvæð­is­at­hugun Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA á íslenskum leigu­bif­reiða­mark­aði og mögu­legum hindr­unum á aðgengi að hon­um. Hins vegar rök­stutt álit ESA gagn­vart Nor­egi þar sem gerðar eru alvar­legar athuga­semdir við aðgangs­hindr­anir að norskum leigu­bif­reiða­mark­aði. Norsk lög­gjöf um leigu­bif­reiðar er um margt lík þeirri íslensku.

Starfs­hópnum var falið að leggja fram til­lögur til ráðu­neyt­is­ins um hvort og þá hvaða breyt­ingar væri nauð­syn­legt að gera á íslensku reglu­verki um leigu­bif­reiða­akstur með hlið­sjón af áliti ESA gagn­vart Nor­egi og frum­kvæð­is­at­hugun ESA á Íslandi. Meg­in­mark­mið starfs­hóps­ins var að stuðla að góðu aðgengi að hag­kvæmri, skil­virkri og öruggri leigu­bif­reiða­þjón­ustu á Íslandi. Einnig að tryggja að reglu­verkið væri í fyllsta sam­ræmi við skuld­bind­ingar íslenska rík­is­ins að EES-rétti og að engar aðgangs­hindr­anir fælust í reglu­verk­inu nema þær sem væru rétt­læt­an­legar vegna almanna­hags­muna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent