Styður ríkisstjórnin loftárásirnar í Sýrlandi?

Bæði Katrín Jakobsdóttir forsætirsráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hafa komið sér undan að svara því beint hvort þau styðji loftárásir Bandaríkjamanna, Breta og Frakka á Sýrlandi í nótt.

Sýrland Ísland
Auglýsing

„Öll NATO ríkin lýstu yfir fullum stuðn­ingi við aðgerð­irnar í gærnótt,“ segir í til­kynn­ingu frá NATO vegna loft­árása Banda­ríkj­anna, Breta og Frakka á Sýr­land í nótt.

­Banda­­rík­­in, Bret­land og Frakk­land hófu í nótt hern­að­ar­að­gerðir gegn sveit­um Bas­hars al-Assads Sýr­lands­­for­­seta, og virð­ast skot­mörkin hafa verið þrjú. Sergei Rudskoi, rúss­neskur hers­höfð­ingi sagði á blaða­manna­fundi í Moskvu að 103 flug­skeytum hafi verið skotið að her­stöðv­un­um, en ein­ungis 32 hafi valdið skaða.

Bæði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­irs­ráð­herra og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra hafa komið sér undan að svara því beint hvort þau styðji árás­irn­ar. Í sam­tali við RÚV í dag sagði Katrín að þau hafi lagt á það áherslu að ná sam­stöðu innan örygg­is­ráðs­ins um aðgerðir sem grípa ætti til. Árás­irnar hafi verið við­búnar fyrst ekki sú sam­staða náð­ist ekki í vik­unni.

Auglýsing

Katrín sagði Vinstri græn alltaf hafa talað fyrir frið­sam­legum lausnum og geri enn. Þegar Katrín var enn spurð hvort hún styðji árás­irn­ar, svar­aði hún: „Við höfum ekki lýst sér­stökum stuðn­ingi við þessar aðgerð­ir, rík­is­stjórn­in, en við höfum sagt að þær hafi verið við­bún­ar.“

Guð­laugur skrif­aði á Twitt­er-­síðu sína í morgun að hóf­stilltar og mark­vissar aðgerð­irnar væru skilj­an­legar í ljósi aðgerð­ar­leysis örygg­is­ráðs­ins. Í hádeg­is­fréttum RÚV var Guð­laugur spurður hvort Ísland ætli að lýsa yfir stuðn­ingi við aðgerð­irn­ar. Hann svar­aði því til að staðan yrði rædd hjá NATO í dag og síðar á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna. „Við höfum sett mjög skýr skila­boð eins og fram hefur komið í dag en við eigum eftir að sjá hvernig þessi mál þró­ast.“



Kol­beinn Ótt­ars­son Proppé þing­maður Vinstri grænna lýsti yfir sér­stakri ánægju með það í dag að að rík­is­stjórn Íslands hafi ekki lýst yfir stuðn­ingi við árás­ina. „Þrjú ríki taka sig til og gera árás á það fjórða, ákvörðun tekin fram­hjá öllum alþjóða­stofn­un­um. Ég mun aldrei styðja slíka aðgerð. Ég er frið­ar­sinni og styð ekki stríð,“ skrif­aði Kol­beinn á Face­book síðu sína.

Hörmu­legar fregnir frá Sýr­landi. Þrjú ríki taka sig til og gera árás á það fjórða, ákvörðun tekin fram­hjá öll­u­m...

Posted by Kol­beinn Ótt­ars­son Proppé on Sat­ur­day, April 14, 2018


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent