Vinna hafin við mótun nýsköpunarstefnu

Málið hefur þegar verið kynnt fyrir ríkisstjórn. Fimm starfshópar vinna að sérhæfðum málum, en heildstæð nýsköpunarstefna skal liggja fyrir 1. maí 2019.

Þórdís kolbrún ráðherra_startuptourism20_.jpg Mynd: Eva Björk
Auglýsing

Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, ferða­mála-, iðn­að­ar-, og nýsköp­un­ar­ráð­herra, lagði á síð­asta rík­is­stjórn­ar­fundi fram til­lögu að gerð heild­stæðrar nýsköp­un­ar­stefnu fyrir Ísland, að því er segir í til­kynn­ingu frá ráðu­neyti Þór­dísar Kol­brún­ar. Kveðið er á um mótun stefn­unnar í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar og er hún nú form­lega haf­in. 

„Ný­sköpun og hvers konar hag­nýt­ing hug­vits er mik­il­væg for­senda fjöl­breytts atvinnu­lífs, sterkrar sam­keppn­is­stöðu, hag­vaxtar og vel­ferðar þjóða, ekki síst í ljósi þeirra þjóð­fé­lags­breyt­inga sem vænta má í atvinnu- og mennta­málum vegna örra tækni­breyt­inga. Í ljósi þessa er nú að fara af stað vinna við  mótun heild­stæðrar nýsköp­un­ar­stefnu fyrir Ísland til árs­ins 2030 og verður hún unnin í víð­tæku sam­starfi stjórn­valda, atvinnu­lífs og vís­inda- og mennta­sam­fé­lags,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þór­dís Kol­brún segir að sagan kenni okkur það, að þær þjóðir sem eru fljótar að til­einka sér nýja tækni og þekk­ingu, vegna betur en öðr­um. „Það ger­ist hins vegar ekk­ert af sjálfu sér og öflug nýsköpun er algert lyk­il­at­riði til að tryggja að lífs­kjör á Íslandi verði áfram sam­bæri­leg við það sem best ger­ist í heim­in­um. Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að Ísland drag­ist ekki aftur úr og nýti fljótt og vel tæki­færin sem fel­ast í auk­inni nýsköp­un. Ég hef vænt­ingar um að gerð stefn­unnar sem hér er lagt upp með muni með þver­fag­legu sam­starfi halda utan um alla þá ólíku anga sem nýsköpun verður að ná til svo að sam­fé­lagið í heild njóti góðs af. Við þurfum að vera óhrædd við að marka skýra stefnu og taka ákvarð­anir til að ná háleitum mark­miðum okk­ar,“ segir Þór­dís Kol­brún.

Auglýsing

Fjórða iðn­bylt­ingin er hafin og það er fyr­ir­séð að á næstu árum mun staf­ræn tækni og sjálf­virkni umbylta atvinnu­grein­um, hag­kerfi, vel­ferð og mennt­un. Í þessu fel­ast ómæld tæki­færi til rót­tækra breyt­inga, fram­fara og auk­inna lífs­gæða. Að sama skapi  geta þær þjóðir sem ekki ná að hag­nýta sér þessar breyt­ingar átt á hættu að drag­ast veru­lega aftur úr.

Því er mik­il­vægt að stefna og aðgerðir stjórn­valda á sviði nýsköp­unar stuðli að tækni­þróun í sátt við þarfir sam­fé­lags og umhverf­is. Ísland hefur mögu­leika á að vera meðal fremstu þjóða í þeirri þróun sem framundan er. Stuttar boð­leið­ir, hátt mennt­un­ar­stig, fjar­skipta­inn­viðir og vilji til að takast á við breyt­ingar er góður grunnur fyrir þá veg­ferð. Á sviði umhverf­is­mála gegnir nýsköpun þýð­ing­ar­miklu hlut­verki fyrir þau mark­mið sem sett hafa verið í lofts­lags­málum sem og í mark­miðum um grænar lausn­ir. Þá er nýsköpun í opin­berri þjón­ustu, mennta­málum og heil­brigð­is­mál­um, for­senda bættra lífs­kjara í heimi tækni­breyt­inga.

Verk­efnið mun byggja á starfi fimm fag­hópa sem fjalla um eft­ir­far­andi mála­flokka.

1. Nýsköpun í þágu þró­unar atvinnu­lífs­ins, þ.m.t. mat­væla­fram­leiðslu, heil­brigð­is­tækni og mennta­mála.

2. Skipu­lagn­ing stuðn­ings­kerfis nýsköp­un­ar, þ.m.t. styrkja­kerfi rann­sókna og þró­unar og stuðn­ingur við sprota­fyr­ir­tæki.

3. Nýsköpun í þágu umhverf­is­vænna lausna, þ.m.t. orku– og lofts­lags­mála.

4. Nýsköpun í opin­berum rekstri og ein­földun reglu­verks.

5. Nýsköpun í heil­brigð­is­málum og vel­ferð­ar­þjón­ustu.

Sér­stök verk­efna­stjórn mun halda utan um stefnu­mót­un­ar­vinn­una og verður hún skipuð verk­efn­is­stjórum verk­efn­anna fimm, auk for­manns verk­efn­is­stjórnar sem ráð­herra nýsköp­un­ar­mála skip­ar.

Heild­stæð nýsköp­un­ar­stefna fyrir Ísland skal liggja fyrir í síð­asta lagi 1. maí 2019, eða eftir eitt ár.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent