Stefnir í „mjúka lendingu“

Gylfi Zoega fjallar ítarlega um stöðu efnahagsmála í Vísbendingu sem kemur til áskrifenda í dag.

flugvél
Auglýsing

Íslenska hag­kerfið er að öllum lík­indum á leið í „mjúka lend­ing­u“, ef til sam­dráttar kem­ur, þar sem stoðir íslenska hag­kerf­is­ins er sterk­ari nú en fyrir rúmum ára­tug, fyrir hrun fjár­mála­kerf­is­ins. Skuldir eru mun minni, og fjár­mála­kerfið er bæði ein­fald­ara, minna og með mun heil­brigð­ari efna­hag, og getur tek­ist á við nið­ur­sveiflu í hag­kerf­in­u. 

Þetta segir Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands og nefnd­ar­maður í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, í ítar­legri grein um stöðu efna­hags­mála, í nýj­ustu útgafu Vís­bend­ing­ar, sem kemur til áskrif­enda í dag. 

Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands.Í grein­inni rekur hann meðal ann­ars mögu­legar afleið­ingar þess, að til sam­dráttar komi í ferða­þjón­ustu. „Þótt mögu­legt sé að skyndi­legur sam­dráttur verði í ferða­þjón­ustu þá eru góðar líkur á að hinu langa hag­vaxt­ar­ferli muni ljúka með „mjúkri lend­ing­u.“ Einnig er víst að því ljúki ekki ­með gjald­eyr­is­kreppu eins og raunin var oft á árum áður. Reyndar eru líkur á að unnt verð­i að bregð­ast við nið­ur­sveiflu með vaxta­lækkun vegna þess að ekki muni þurfa að beita vöxtum til þess að halda uppi gengi krón­unnar vegna hins mikla við­skipta­af­gangs sem ver­ið hef­ur, góðrar skulda­stöðu erlend­is, þess að óvarðir aðilar skulda ekki í erlendum myntum og ­vegna þess að verð­bólgu­vænt­ingar virðst hafa góða kjöl­fest­u. Toppur upp­sveifl­unnar sem nú er að dala var árið 2016 en þá var hag­vöxtur mældur sem hlut­falls­legur vöxtur VLF 7,5%. Sam­kvæmt nýj­ustu tölum Hag­stof­unnar var 3,6% hag­vöxt­ur árið 2017 og Seðla­bank­inn spáir 3,3% hag­vexti í ár. Þannig er hag­vöxtur smám saman að ­fær­ast nær þeim vexti sem hag­kerfið getur staðið undir til lengri tíma án þess að verð­bólga ­vaxi. Minni hag­vöxtur stafar af því að hægt hefur á vexti fjár­fest­ingar og einka­neyslu og einnig útflutn­ings. Atvinnu­vega­fjár­fest­ing jókst um 26,4% árið 2916, 4,3% árið 2018 og spáð er sam­drætti í ár. Einnig hægir á útflutn­ingi vöru og þjón­ustu sem var 10,9% árið 2016, 4,8% 5 árið 2017 og spáð er að verði 3,3% í ár. Einka­neysla jókst um 7,1% árið 2016, um 7,8% árið 2017 og spáð er að hún vaxi um 6,4% í ár og 3, 8% árið 2019. Af þessu leiðir að hag­kerfið virð­ist stefna í mjúka lend­ingu þar sem vöxtur atvinnu­greina er ­jafn­ari og aðrar greinar en ferða­þjón­usta og sjáv­ar­út­vegur fá svig­rúm til þess að blómstra,“ segir meðal ann­ars í grein Gylfa.

Auglýsing

Hér má ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent