Píratar bæta við sig ríflega tveimur prósentustigum í þjóðarpúls Gallup fyrir júní sem birtist í dag. Rúmlega 13 prósent þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag.
Fylgi annarra framboða breytist lítið eða um á bilinu 0,1 til 1,6 prósentustig. Nær 24 prósent segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, um 18 prósent Samfylkinguna, rúmlega 13 prósent Vinstri græn, nær 9 prósent Framsóknarflokkinn, tæplega 9 prósent Miðflokkinn, rösklega 8 prósent Viðreisn, liðlega 4 prósent Flokk fólksins og næstum 2 prósent segist myndu kjósa aðra flokka en þá sem sæti eiga á Alþingi í dag.
Fylgi við ríkisstjórnina minnkar um rösklega 4 prósentustig milli mánaða, en nær 54 prósent þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.
Tæplega 7 prósent svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og 9 prósent taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.
Spurt var: Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa? En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu? Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna? Styður þú ríkisstjórnina?
Niðurstöðurnar sem birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 2. til 31. maí 2018. Heildarúrtaksstærð var 7.113 og þátttökuhlutfall var 56,6 prósent. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,3-1,4 prósent. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup, segir í tilkynningu frá Gallup.