Fimm umsækjendur um stöðu aðstoðarseðlabankastjóra eru taldir hæfastir, en nefnd sem metur hæfi umsækjenda hefur skilað af sér niðurstöðum sínum til Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra sem skipar í starfið.
Frá þessu er greint í ViðskiptaMogganum í dag.
Í hæfnisnefndinni sitja: Friðrik Má Baldursson, prófessor við Háskólann í Reykjavík sem er formaður hennar. Hann er skipaður í nefndina af forsætisráðherra án tilnefningar. Þórunn Guðmundsdóttir, hæstaréttarlögmaður og varaformaður bankaráðs SÍ sem skipuð er samkvæmt tilnefningu bankaráðsins, og Eyjólfur Guðmundssson, rektor Háskólans á Akureyri, sem skipaður er samkvæmt tilnefiningu samstarfsnefndar háskólastigsins.
Arnór Sighvatsson gegnir nú stöðunni, en hann hættir 1. júlí, þar sem skipunartími hans er að renna út.
Umsækjendurnir fimm sem komust í flokkinn „mjög vel hæfir“ eru dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbanka Íslands, Guðrún Johnsen, lektor og doktorsnemi í hagfræði, Jón Þór Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri alþjóðasamskipta við SÍ, Rannveig Sigurðardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri hagfræði- og peningastefnusviðs SÍ, og Þorsteinn Þorgeirsson, ráðgjafi seðlabankastjóra.
Umsækjendurnir tveir sem hæfnisnefndin taldi vel hæfa á eftir hinum fimm mjög vel hæfu eru þeir dr. Tryggvi Guðmundsson, hagfræðingur sem starfar sem fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í London, og Vilhjálmur Bjarnason, hagfræðingur og fyrrum alþingismaður Sjálfstæðisflokksins.
Í þriðja flokknum og hæfa telur nefndin vera þá Konráð S. Guðjónsson, hagfræðing Viðskiptaráðs Íslands, dr. Lúðvík Elíasson, starfsmann Seðlabanka Íslands, dr. Ólaf Margeirsson, sérfræðing hjá Zurich Insurance, og Stefán Hjalta Garðarsson, reikniverkfræðing og frumkvöðul, að því er fram kemur í ViðskiptaMogganum.