Verðbólga yfir markmiði annað skiptið á fjórum árum

Tólf mánaða verðbólga mældist í 2,8% í júní síðastliðnum, en þetta er í annað skiptið á fjórum árum sem hún mælist yfir markmiði Seðlabankans.

Verð á flugferðum hækkaði óvænt í júní í ár.
Verð á flugferðum hækkaði óvænt í júní í ár.
Auglýsing

Vísi­tala neyslu­verðs hækk­aði um 0,62% milli mán­aða í júní sam­kvæmt nýbirtum tölum Hag­stofu. Með því hækk­aði árs­verð­bólgan úr 2% í 2,6%. Árs­verð­bólgan er því komin yfir yfir­lýst verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans, í annað skiptið á fjórum árum.

Flug­ferðir dýr­ari

Sam­kvæmt mark­aðs­punkt­um Arion ­banka voru verð­bólgu­spár grein­ing­ar­að­ila nokkuð undir mæl­ingu Hag­stofu, eða á bil­inu 0,3-0,4%. Þá reynd­ust mæl­ingar á verði hús­næðis og flug­far­gjöldum til útlanda helst vera yfir vænt­ing­um. Flug­far­gjöld til útlanda hækk­uðu um 15,2%, nær þrefalt meira en búist var við. Sömu­leiðis hækk­að­i fast­eigna­verð ­lít­il­lega milli mán­aða, en það hefur staðið í stað og lækkað nokkuð á und­an­förnum miss­er­um.

Arion ­nefnir einnig áhrif inn­fluttra vara á verð­bólg­una, en hún hefur síð­ustu árin dregið neyslu­verð niður á Íslandi sam­hliða því sem fast­eigna­mark­að­ur­inn hefur haft jákvæð áhrif á verð. Áhrif beggja þess­ara þátta virð­ast hins vegar hafa dvínað nokkuð nýlega með hærri olíu­verði og kulnun á fast­eigna­mark­aðn­um.

Auglýsing

Húsa­leigan stríðir Lands­bank­anum

Sam­kvæmt grein­ing­u Hag­fræði­deild­ar Lands­bank­ans var stærsta mis­ræmið milli spár bank­ans og mæl­ingar Hag­stofu í liðnum reiknuð húsa­leiga. Þar var hækkun á húsa­leigu 1,1% milli mán­aða, sem var þre­föld á við spá bank­ans. Einnig hafði hækkun á flug­far­gjöldum og heims­mark­aðs­verði á olíu haft áhrif, sem og hækk­un fast­eigna­verðs. 

Þetta er í annað skiptið á rúmum fjórum árum sem tólf mán­aða verð­bólga hefur farið yfir 2,5% verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans, en hún hefur hald­ist lág frá fyrri part árs­ins 2014 sam­hliða geng­is­hækkun krón­unnar og lækk­andi heims­mark­aðs­verði á olíu.

Á síð­ustu tíu mán­uðum hefur olíu­verð hins vegar hækkað nokkuð hratt og verð á inn­fluttum vörum sömu­leið­is. Raun­gengi krón­unnar hefur þó hald­ist til­tölu­lega stöðugt á sama tíma­bili, þrátt fyrir mikla veik­ingu á fyrri hluta síð­asta sum­ar­s. 

Nýbirtar tölur eru í nokkru sam­ræmi við spár Seðla­bank­ans um verð­bólgu fyrir annan árs­fjórð­ung, en í nýjasta hefti Pen­inga­mála sem kom út í maí spáði bank­inn því að hún yrði að með­al­tali 2,4% þennan árs­fjórð­ung, en auk­ist upp í 2,9% á síð­asta árs­fjórð­ungi. Þá var gert ráð fyrir því að verð­bólga færi minnk­andi að verð­bólgu­mark­mið­inu á næsta ári og hald­ist í grennd við það út spá­tím­ann.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent