Ljósmæður segja afar erfitt að kveðja starfið

Í gær tóku gildi uppsagnir tólf ljósmæðra, þriggja á fæðingarvakt og níu á meðgöngu- og sængurlegudeild Landspítala. Þetta, sem og yfirvinnubann, mun hafa mikil áhrif á starfsemi viðkomandi deilda.

barn
Auglýsing

Í gær tóku gildi upp­sagnir tólf ljós­mæðra, þriggja á fæð­ing­ar­vakt og níu á með­göngu- og sæng­ur­legu­deild Land­spít­ala. Upp­sagn­irnar eru afleið­ing um tíu mán­aða kjara­deilu Ljós­mæðra­fé­lags Íslands og rík­is­ins. Þetta kemur fram í frétt Morg­un­blaðs­ins í dag en þar er rætt við sex þess­ara tólf ljós­mæðra. Allar segja þær það hafa verið afar erfitt að kveðja starf­ið.

Þær segj­ast hafa von­ast til að sam­komu­lag myndi nást áður en upp­sagn­irnar tækju gildi en engin þeirra sér eftir því að hafa sagt upp starfi sínu. Með upp­sögn­unum von­ist þær til þess að málið kom­ist á hreyf­ingu.

„Við viljum að ráða­menn fari að beita sér í mál­inu. Bjarni Bene­dikts­son heldur um veskið en ég skelli samt mestri skuld á for­sæt­is­ráð­herrann, Katrínu Jak­obs­dótt­ur, sem hefur vald­ið. Hún hefur ekki staðið sig,“ segir María Rebekka Þór­is­dótt­ir, ein ljós­mæðr­anna sem létu af störfum í gær, í sam­tali við Morg­un­blað­ið. 

Auglýsing

Auk upp­sagn­anna var yfir­vinnu­bann ljós­mæðra sam­þykkt í gær, með um 90 pró­sent atkvæða, en það mun taka gildi um miðjan mán­uð­inn og er ætlað til að knýja á um bætur í kjara­bar­átt­unni. Bannið mun gilda á öllum heil­brigð­is­stofn­unum hér á landi, að und­an­skildum heilsu­gæsl­um, segir í frétt­inn­i. 

Ljóst er að upp­sagn­irnar og yfir­vinnu­bannið munu hafa mikil áhrif á starf­semi við­kom­andi deilda. Í sam­tali við Morg­un­blaðið seg­ir Hilda Frið­finns­dótt­ir, yfir­ljós­móðir með­göngu- og sæng­ur­legu­deildar Land­spít­ala, að þær hafi und­ir­búið sig fyrir þetta síð­ustu tíu daga en þrátt fyrir það hafi hún von­ast til, alveg fram á síð­ustu stundu, að þetta myndi leys­ast.

Í kjöl­far upp­sagn­anna er ráð­gert að boðað verði til fundar í vel­ferð­ar­nefnd Alþingis á þriðju­dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent