Áætlaður kostnaður við hátíðarþingfund Alþingis á Þingvöllum á morgun og hátíðarkvöldverð þingforseta er 70 til 80 milljónir króna. Kostnaðurinn gæti þannig farið allt að 78 prósent umfram áætlun. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Í svari Steingríms J. Sigfússonar, forseta Alþingis, við fyrirspurn Björns Leví Gunnarssonar frá því í júnílok kemur fram að kostnaður í rekstraráætlun ársins vegna fundarins hafi verið um 45 milljónir. Þó væri ljóst að eftir því sem umfang viðburðarins hefði skýrst gæti kostnaður orðið eitthvað meiri.
Fundurinn verður sýndur í beinni útsendingu, settur hefur verið upp sérstakur pallur fyrir neðan Lögberg sem ætlaður er þingmönnum og boðsgestum.
Meðal boðsgesta eru forseti Íslands og þingforsetar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Forseti Alþingis mun svo bjóða þingmönnum og gestum til hátíðarkvöldverðar.
Fundurinn sem hefst klukkan 14 á morgun á Þingvöllum er liður í hátíðarhöldum í tilefni af 100 ára fullveldisafmæli Íslands. Þar stendur til að samþykkja þingsályktunartillögur um stofnun Barnamenningarsjóðs, byggingu nýs hafrannsóknaskips og útgáfu ritverka um Þingvelli í íslenskri myndlist og bókmenntasögu frá landnámi til 21. aldar.
Á morgun verða 100 ár liðin frá undirritun samninga um sambandslögin. Lögin tóku gildi 1. desember 1918 eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um haustið.