Fundur Alþingis á Þingvöllum kostar 80 milljónir

Áætlaður kostnaður við hátíðarþingfund Alþingis á Þingvöllum á morgun og hátíðarkvöldverð þingforseta er 70 til 80 milljónir króna. Kostnaðurinn gæti þannig farið allt að 78 prósent umfram áætlun.

kirkjan þingvellir
Auglýsing

Áætl­aður kostn­aður við hátíð­ar­þing­fund Alþingis á Þing­völlum á morgun og hátíð­ar­kvöld­verð þing­for­seta er 70 til 80 millj­ónir króna. Kostn­að­ur­inn gæti þannig farið allt að 78 pró­sent umfram áætl­un. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Í svari Stein­gríms J. Sig­fús­son­ar, for­seta Alþing­is, við fyr­ir­spurn Björns Leví Gunn­ars­sonar frá því í júní­lok kemur fram að kostn­aður í rekstr­ar­á­ætlun árs­ins vegna fund­ar­ins hafi verið um 45 millj­ón­ir. Þó væri ljóst að eftir því sem umfang við­burð­ar­ins hefði skýrst gæti kostn­aður orðið eitt­hvað meiri.

Fund­ur­inn verður sýndur í beinni útsend­ingu, settur hefur verið upp sér­stakur pallur fyrir neðan Lög­berg sem ætl­aður er þing­mönnum og boðs­gest­um.

Auglýsing

Meðal boðs­gesta eru for­seti Íslands og þing­for­setar Norð­ur­landa og Eystra­salts­ríkja. For­seti Alþingis mun svo bjóða þing­mönnum og gestum til hátíð­ar­kvöld­verð­ar.

Fund­ur­inn sem hefst klukkan 14 á morgun á Þing­völlum er liður í hátíð­ar­höldum í til­efni af 100 ára full­veld­is­af­mæli Íslands. Þar stendur til að sam­þykkja þings­á­lykt­un­ar­til­lögur um stofnun Barna­menn­ing­ar­sjóðs, bygg­ingu nýs haf­rann­sókna­skips og útgáfu rit­verka um Þing­velli í íslenskri mynd­list og bók­mennta­sögu frá land­námi til 21. ald­ar.

Á morgun verða 100 ár liðin frá und­ir­ritun samn­inga um sam­bands­lög­in. Lögin tóku gildi 1. des­em­ber 1918 eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um haust­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent