Flokkar í minnihluta borgarstjórn Reykjavíkur harma „algjört aðgerðarleysi“ í málefnum heimilislausra í Reykjavík. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu minnihlutaflokkanna, Sósíalistaflokksins, Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Flokks fólksins.
Fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn hittust á fundi í gærdag til að fjalla um stöðu mála. „Við þessar aðstæður er það fullkomið ábyrgðarleysi að borgarstjórn og fagráð borgarinnar séu nú komin í sumarleyfi án þess að leysa vandann. Minnihlutinn óskaði eftir aukafundi í velferðarráði fyrr í sumar þar sem þessi mál yrðu sett á dagskrá í heild sinni. Svörin voru á þann veg að ekki var unnt að verða við ósk um aukafund fyrr en 10. ágúst nk., á meðan eykst neyð heimilislausra með hverjum deginum. Eins og fram hefur komið í nýlegu áliti umboðsmanns Alþingis hefur meirihluti borgarstjórnar brugðist skyldum sínum í þessum efnum,“ segir í yfirlýsingunni.
Jafnframt er tekið fram að minnihlutinn, hvar í flokki sem hann standi, sammælist um að grípa þurfi strax til neyðarúrræða, hefjast handa við að leysa þennan alvarlega vanda til frambúðar og hefur farið fram á aukafund í borgarráði strax í næstu viku.
„Heimilislaust fólk fær ekki sumarfrí frá áhyggjum sínum og þeirri angist sem fylgir því að hafa ekki þak yfir höfuðið,“ segir í yfirlýsingunni.