Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að meta stöðu landshlutasamtaka sveitarfélaga með það að markmiði að skýra hlutverk þeirra og stöðu gagnvart sveitarfélögum annars vegar og ríkinu hins vegar.
Þetta kemur fram í frétt ráðuneytisins.
Verkefni starfshópsins er að leggja fram tillögur um hvernig landshlutasamtök sveitarfélaga geti betur unnið með sveitarfélögum og styrkt svæðasamvinnu þeirra þannig að sveitarfélög og sveitarstjórnarstigið verði betur í stakk búið til að taka við fleiri verkefnum og tryggja íbúum á landinu öllu nauðsynlega og lögbundna þjónustu. Við vinnu sína skal starfshópurinn eiga víðtækt samráð við fulltrúa sveitarstjórna og samtök þeirra og horfa til stöðu og þróunar sveitarstjórnarstigsins í nágrannaríkjum.
Á vefsíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga segir að landshlutasamtök séu frjáls samtök sveitarfélaganna og hafi þau öll sérstakan framkvæmdastjóra og skrifstofu. Landshlutasamtökin fari með byggðamál og sérstök hagsmunamál hvers landshluta.
„Nú eru starfrækt átta landshlutasamtök sveitarfélaga sem flest sveitarfélög eiga aðild að. Í flestum tilvikum fara starfssvæði landshlutasamtakanna eftir kjördæmaskipaninni sem gilti til ársins 2003. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, SSH, ná þó yfir Reykjavíkurborg og nágrannasveitarfélög hennar í Suðvesturkjördæmi. Landshlutasamtök sveitarfélaga voru mörg hver stofnuð fyrir tilstuðlan Sambands íslenskra sveitarfélaga,“ segir á vefsíðunni.
Í frétt ráðuneytisins kemur fram að starfshópurinn sé þannig skipaður: Ásgerður Gylfadóttir, formaður bæjarráðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar, formaður starfshópsins, skipuð af ráðherra, Óli Halldórsson, formaður bæjarráðs Norðurþings, skipaður af ráðherra, Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Bláskógabyggðar, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Rakel Óskarsdóttir, bæjarfulltrúi á Akranesi og formaður SSV, tilnefnd af landshlutasamtökum sveitarfélaga.
Með hópnum starfar Stefanía Traustadóttir, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Sérstakur ráðgjafi starfshópsins er Eva Marín Hlynsdóttir, lektor við stjórnmálafræðideild Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands.