Veggjöld innheimt til 28. september

Spölur stefnir að því að afhenda Vegagerðinni Hvalfjarðargöng til eignar og rekstrar sunnudaginn 30. september næstkomandi. Innheimtu veggjalds yrði þá hætt föstudaginn 28. september.

Hvalfjarðargöng Mynd: Flickr/Britt-Marie Sohlström
Auglýsing

Spölur stefnir að því að afhenda Vega­gerð­inni Hval­fjarð­ar­göng til eignar og rekstrar sunnu­dag­inn 30. sept­em­ber næst­kom­andi. Inn­heimtu veggjalds yrði þá hætt föstu­dag­inn 28. sept­em­ber. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

Stjórn Spalar hefur til­kynnt hlut­höfum félags­ins þessa ákvörðun sína en tekur jafn­framt fram að tíma­setn­ingin sé kynnt að þeim for­sendum gefnum að Rík­is­skatt­stjóri fall­ist á til­tekna með­ferð á skatta­legri afskrift gang­anna og í öðru lagi að Sam­göngu­stofa skili fyr­ir­vara­lausri úttekt á göng­unum í aðdrag­anda eig­enda­skipt­anna.

Sam­kvæmt til­kynn­ing­unni greindi sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið stjórn Spalar þann 7. maí síð­ast­lið­inn frá því að ríkið myndi ekki yfir­taka félögin sem eiga og reka göng­in, líkt og rætt hafði verið um áður í sam­skiptum Spalar við fjár­mála­ráðu­neyt­ið, fyrst á árinu 2009. Slík útfærsla á afhend­ingu gang­anna hefði meðal ann­ars áhrif á reikn­ings­halds­legar afskriftir mann­virk­is­ins.

Auglýsing

Mun gera upp við við­skipta­vini sína

Jafn­framt kemur fram í til­kynn­ing­unni að í júní síð­ast­liðnum hafi stjórn Spalar leitað álits Rík­is­skatt­stjóra á hvernig fara skyldi með skatta­lega afskrift gang­anna og hugs­an­lega skatt­lagn­ingu Spalar á árinu 2018. Svar hafi ekki borist við erind­inu en þess sé vænst að við­un­andi botn fáist í málið í tæka tíð svo unnt sé að afhenda göngin í lok sept­em­ber.

Spölur mun á næstu mán­uðum gera upp við við­skipta­vini sína. Fyr­ir­tækið mun taka við veglyklum gegn 3.000 króna skila­gjaldi, taka við og end­ur­greiða ónot­aða afslátt­ar­miða og greiða út inn­eignir á áskrift­ar­reikn­ingum not­enda veglykla.

Frestur til 30. nóv­em­ber að skila veglyklum

Sam­kvæmt fyr­ir­tæk­inu hafa við­skipta­vinir frest til 30. nóv­em­ber næst­kom­andi til að skila veglyklum og afslátt­ar­mið­um.

„Í ljósi þess að upp­gjörs­málin skipta tugum þús­unda áskilur Spölur sér lengri frest en 30 daga til að afgreiða þau öll. Starfs­fólk á skrif­stofu félags­ins vinnur að upp­gjöri og frá­gangi til loka árs­ins og sumir fram á nýtt ár.

Spölur sendir ekki lengur út reikn­inga til við­skipta­vina sinna vegna áskrift­ar­ferða. Þeir sem hafa nýtt alla inn­eignir sínar á áskrift­ar­reikn­ingum fá reikn­ing í októ­ber fyrir ferðum sínum í sept­em­ber,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent