Rekstrarafkoma af samstæðu Isavia fyrir fjármagnsliði og skatta á fyrri helmingi ársins 2018 var jákvæð um 2.186 milljónir króna og jókst um 9 prósent á milli ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Rekstrartekjur námu 19.015 milljónum króna sem er 2.099 milljóna króna aukning samanborið við sama tímabil á síðasta ári eða 12 prósent. Heildarafkoma tímabilsins var jákvæð um 1.571 milljón króna samanborið við 1.482 milljónir króna á sama tímabili á síðasta ári og hækkaði því um 89 milljónir króna.
Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia segir afkomu Isavia vera í meginatriðum í takt við áætlanir félagsins.
„Ferðamönnum sem fóru um Keflavíkurflugvöll fyrstu sex mánuði þessa árs hefur fjölgað um 15,6 prósent samanborið við sama tímabil í fyrra. Það er veruleg fjölgun sem er að stærstu hluta tilkomin vegna fjölgunar skiptifarþega sem er í takt við spár Isavia. Metfjöldi farþega hefur farið um Keflavíkurflugvöll nú í lok sumars. Sú fjölgun farþega sem hefur orðið hefur tryggt okkur það að aldrei áður hefur verið flogið til jafnmargra áfangastaða frá Íslandi, hvort sem það er í Evrópu eða Norður-Ameríku,“ segir hann.