Útgefandi DV tapaði 43,6 milljónum – Skuldar eigandanum hundruð milljóna

Frjáls fjölmiðlum tók til starfa í september í fyrra og tapaði rúmlega tíu milljónum krónum á mánuði að meðaltali fram að áramótum. Félagið skuldar eiganda sínum 425 milljónir króna og hann skuldar ótilgreindum aðila sömu upphæð.

7DM_0805_raw_2405.JPG
Auglýsing

Frjáls fjöl­miðlun ehf., sem á rekur DV og fleiri fjöl­miðla, tap­aði 43,6 millj­ónum króna á þeim tæpu fjórum mán­uðum sem félagið var starf­andi á árinu 2017. Tekjur þess voru 81,4 millj­ónir króna frá því að félagið hóf starf­semi í sept­em­ber 2017 og fram að ára­mót­um. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi félags­ins sem nýverið var skilað inn til árs­reikn­inga­skrá­ar.

Frjáls fjöl­miðlun keypti í fyrra­haust fjöl­mið­l­anna Pressu­­­sam­­­stæð­unn­­­ar: DV, DV.is, Eyj­una, Press­una, Bleikt, Birtu, Dokt­or.is, 433.is og sjón­­­varps­­­stöð­ina ÍNN. ÍNN hefur síðan verið sett í þrot. Hluti skulda Pressunnar voru skildir eftir í henni og félagið svo sett í þrot. Alls var kröfum upp á 315 millj­­ónir króna lýst í þrotabú Press­unn­­ar. Skipta­­stjóri bús­ins við­­ur­­kenndi kröfur upp á 110 millj­­ónir króna en hafn­aði öðr­­um.

Eig­andi Frjálsrar fjöl­miðl­unar er félagið Dals­dalur ehf. Eini skráði eig­andi þess er Sig­urður G. Guð­jóns­son lög­maður sem er einnig skráður fyr­ir­svars­maður Frjálsrar fjöl­miðl­unar hjá Fjöl­miðla­nefnd.

Auglýsing

Eigið fé nei­kvætt og há skuld við eig­anda

Frjáls fjöl­miðlun hóf starf­semi í sept­em­ber 2017. Heild­ar­tap fyrir skatta var 54,5 millj­ónir króna en skatt­inn­eign skil­aði félag­inu 10,9 milljón króna í tekjur sem töldu á móti.

Alls eru eignir Frjálsrar fjöl­miðl­unar metnar á 529 millj­ónir króna. Þar af eru óefn­is­legar eignir bók­færðar á 470 millj­ónir króna.

Skuldir félags­ins, sem er ein stærsta einka­rekna fjöl­miðla­sam­steypa lands­ins, voru 542 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót og  var stofnað til þeirra á síð­asta ári. Þar munar mest um 425 milljón króna skuld við eig­and­ann, Dals­dal ehf. Sú skuld, sem virð­ist vaxta­laus, á að greið­ast til baka á árunum 2018 til 2022, 85 millj­ónir króna á ári. Ekki kemur fram í árs­reikn­ingi Dals­dals ehf. hver lán­aði því félagi fjár­magn til að lána Frjálsri fjöl­miðlun en þar segir að Dals­dalur eigi að greiða þeim aðila alla upp­hæð­ina til baka í ár, 2018.

Þá kemur fram í árs­reikn­ingi Frjálsrar fjöl­miðl­unar að ógreitt kaup­verð eigna væri 53 millj­ónir króna í árs­lok 2017. Eigið fé félags­ins var nei­kvætt um 13,3 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót, inn­greitt hlutafé var 30 millj­ónir króna og félagið átti 14,6 millj­ónir króna í hand­bæru fé.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent