Nýjar íbúðir í Reykjavík kosta 51 milljón króna að meðaltali

Hlutfall nýbygginga í íbúðaviðskiptum nálgast það sem það var árið 2007. Hlutfallið er hæst í Mosfellsbæ en einungis sex prósent í Reykjavík.

Aukið magn nýbygginga hefur komið inn á markaðinn að undanförnu.
Aukið magn nýbygginga hefur komið inn á markaðinn að undanförnu.
Auglýsing

Sölu­verð nýrra íbúða í Reykja­vík á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins 2018 var 32 pró­sent hærra en verð á fer­metra á öðrum íbúð­um. Með­al­verð nýju íbúð­anna á fer­metra var 556 þús­und krónur á sama tíma og með­al­fer­metra­verðið í borg­inni var 445 þús­und krón­ur.

Að með­al­tali kost­aði ný íbúð sem byggð var í Reykja­vík 51 milljón króna á tíma­bil­inu en með­al­tals­verð ann­arra íbúða var 46 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í nýrri grein­ingu frá hag­deild Íbúða­lána­sjóðs.

Þar segir enn fremur að hag­deildin telji margt benda til þess að sér­stakur skortur sé á minni og hag­kvæmum íbúðum á verði sem almenn­ingur ræður við. „Minni íbúðir í nýbygg­ingum eru skemur í sölu og lík­legri til að selj­ast á eða yfir ásettu verði en stærri íbúðir í nýbygg­ing­um. Þrátt fyrir þessa eft­ir­spurn eftir litlum íbúðum er ljóst að fáar af þeim nýbygg­ingum sem komið hafa á mark­að­inn að und­an­förnu henta þeim sem hafa lítið eigið fé til íbúð­ar­kaupa. Aðeins fimm pró­sent nýbygg­inga á lands­vísu hafa verið aug­lýst á undir 30 millj­ónum króna það sem af er ári og aðeins tvö pró­sent þeirra hafa verið aug­lýst á undir 25 millj­ón­um.“

Auglýsing

Ljóst er þó að nýbygg­ingar eru farnar að hafa umtals­verð áhrif á hús­næð­is­mark­að­inn. frá ára­mótum og út júlí­mán­uði voru 14 pró­sent allra íbúða­við­skipta á almennum mark­aði vegna nýbygg­ingu. Það er ekki langt frá því hlut­falli sem var árið 2007, þegar síð­asta efna­hags­upp­sveifla sem Ísland gekk í gegnum náði hámarki sínu. Þá var hlut­fall nýbygg­inga í íbúða­við­skiptum 18 pró­sent. Til sam­an­burðar var hlut­fall nýbygg­inga í slíkum við­skiptum þrjú pró­sent árið 2010.

Í grein­ing­unni kemur fram að hlut­fall nýbygg­inga í íbúða­við­skiptum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er hæst í Mos­fells­bæ, þar sem 56 pró­sent allra slíkra voru vegna kaupa og sölu á nýbygg­ing­um. Hlut­fallið var 45 pró­sent í Garðabæ en sex pró­sent í Reykja­vík.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent