Læknar deila við Svandísi

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sent yfirlýsingu frá ráðuneytinu þar sem hún sér sig knúna til að leiðrétta fullyrðingar í grein þriggja lækna sem halda því fram að ráðherra ætli sér að færa þjónustu sérgreinalækna inn á göngudeildir.

Svandís Svavarsdóttir
Auglýsing

Svan­dís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur sent yfir­lýs­ingu frá ráðu­neyt­inu þar sem hún sér sig knúna til að leið­rétta full­yrð­ingar í grein þriggja lækna sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag þar sem þeir meðal ann­ars halda því fram að ráð­herra ætli sér að færa þjón­ustu sér­greina­lækna að miklu leyti eða alfarið inn á göngu­deildir sjúkra­húsa.

Í grein­inni, sem ber nafnið „Það sem ekki er sag­t“, segja lækn­arn­ir, Högni Ósk­ars­son, geð­læknir og stjórn­enda­þjálf­ari, Sig­urður Árna­son, lyf­lækn­ir, heilsu­gæslu­læknir og krabba­meins­lækn­ir, og Sig­urður Guð­munds­son, læknir við Land­spít­ala og pró­fessor við lækna­deild Háskóla Íslands, segja hug­mynd ráð­herr­ans, sem sé rót­tæk, þá að færa einn hinna stóru þátta, „mögu­lega þann skil­virkasta, þ.e. þjón­ustu sjálf­stætt starf­andi sér­fræð­inga“, inn á göngu­deild­irnar eða heilsu­gæsl­una.

Lækn­arnir þrír segja þessa hugsun ein­ungis byggða á póli­tískri kreddu, göngu­deild­irnar hafi hvorki húsa­kost né mann­skap til að taka við þó ekki væri nema broti af þjón­ustu sjálf­stætt starf­andi sér­fræð­inga. Um sé að ræða mjög sér­hæfða lækn­is­þjón­ustu sem heilsu­gæslan að jafn­aði fáist ekki við og geti ekki feng­ist við um fyr­ir­sjá­an­lega fram­tíð enda hafi hún ekki sér­hæft starfs­lið til að sinna slíkri vinnu. „Það stefnir því í versta kost­inn; að kostn­aður sér­fræði­þjón­ust­unnar flytj­ist frá sjúkra­trygg­ingum yfir á sjúk­linga. Og enn einu sinni bitnar þetta á ein­stak­lingum og fjöl­skyldum sem minnstar hafa tekj­urn­ar. Sjúk­lingar vilja það ekki, læknar vilja það ekki, þjóðin vill það ekki. Væri því ekki ráð að anda djúpt og stunda samn­inga­við­ræður sem tryggja að heil­brigð­is­þjón­ust­unni í land­inu sé ekki stefnt í voða um ára­mót. Heil­brigð­is­ráð­herra, vakn­aðu strax. Ann­ars fellur þú á tíma,“ segja lækn­arn­ir.

Auglýsing

Úr Morgunblaðinu.

Í svari sínu segir ráðu­neytið að orðið hafi veru­leg aukn­ing á stofu­rekstri sjálf­stætt starf­andi sér­greina­lækna síð­ustu ár og starf­semi þeirra færst að sama skapi út af Land­spít­al­an­um. Þessi þróun hafi átt sér stað, án til­lit til þess hvort um sé að ræða sér­greinar sem eðlis síns vegna ættu frekar að vera innan sjúkra­húss­ins eða ekki. Þá hafi Rík­is­end­ur­skoðun bent á hvernig fjár­munir hafa á liðnum ára­tug færst frá opin­beru heil­brigð­is­þjón­ust­unni inn í einka­rekna hluta heil­brigð­is­kerf­is­ins.

„Svan­dís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur lýst þeirri stefnu ítrekað að hún hygg­ist styrkja opin­bera heil­brigð­is­kerfið og vinna að þeirri stefnu sem bygg­ist á almennri sátt í sam­fé­lag­inu og felst meðal ann­ars í því að efla heilsu­gæsl­una til muna með þver­fag­legri mönnun heil­brigð­is­stétta og vinna að því að jafna aðgengi lands­manna að heil­brigð­is­þjón­ustu, óháð efna­hag og búsetu. Það hefur hins vegar komið skýrt fram af hálfu ráð­herra að það sé alls ekki stefna eða mark­mið að fyr­ir­byggja starf­semi sjálf­stætt starf­andi heil­brigð­is­starfs­fólks á stofum með greiðslu­þátt­töku hins opin­ber­a.“

Haft er eftir Svandísi að það sem máli skipti og hafi marg­sinnis verið bent á, bæði af hálfu erlendra ráð­gjafa­fyr­ir­tækja, Rík­is­end­ur­skoð­unar og ann­arra, er að ríkið axli ábyrgð sína sem kaup­andi þjón­ustu fyrir almanna­fé. „Fjár­munir til heil­brigð­is­þjón­ustu eru ekki ótak­mark­að­ir, ekki fremur en til ann­arra verk­efna. Þess vegna þarf að skil­greina hvaða þjón­ustu vantar og í hvaða mæli og sjá til þess að þeir sem á þjón­ust­unni þurfa að halda geti fengið hana. Það er óvenju­legt við rekstur íslenska heil­brigð­is­kerf­is­ins að ekki skuli vera fyrir hendi þjón­ustu­stýr­ing varð­andi starf­semi sér­greina­lækna og á það hefur verði bent marg­sinn­is. Þessu þarf að breyta. Það er hins vegar alröng full­yrð­ing sem fram kemur í grein lækn­anna þriggja, þeirra Högna Ósk­ars­son­ar, Sig­urðar Árna­sonar og Sig­urðar Guð­munds­son­ar, að ég ætli að færa þjón­ustu sjálf­stætt starf­andi sér­greina­lækna „að miklu leyti eða alfarið inn á göngu­deildar sjúkra­hús­anna“ og mér finnst það áhyggju­efni að rang­færslur sem þessar séu ítrekað settar fram í umræð­unn­i,“ segir Svan­dís.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent