Árið 2016 höfðu um sjö af hverjum hundrað heimilum ekki getað greitt húsnæðislán eða húsaleigu á réttum tíma einhvern tímann á síðastliðnum tólf mánuðum vegna fjárhagserfiðleika. Þetta kemur fram í Lífskjararannsókn Hagstofunnar.
Um 8 prósent heimila með börn höfðu þá verið í vanskilum með húsnæðiskostnað, um 7 prósent með aðra heimilisreikninga, svo sem internet eða rafmagnskostnað, og 9 prósent verið í vanskilum á öðrum lánum en einungis 4 prósent heimila án barna. Um 13 prósent heimila voru í einhvers konar vanskilum árið 2016 sem er töluverð fækkun frá árinu 2010 þegar þetta hlutfall var um 19 prósent.
Hlutfall íbúa í vanskilum minnkað
Þegar íbúar heimila eru skoðaðir kemur í ljós að í heild hefur hlutfall landsmanna í einhvers konar vanskilum minnkað úr 20 prósent árið 2010 í 13 prósent árið 2016. Þar sem heimili með börn eru hlutfallslega líklegri til að vera í einhvers konar vanskilum er hlutfallið hærra á meðal barna en þeirra sem eru 18 ára og eldri. Árið 2016 reyndust 19 prósent barna búa á heimilum í einhvers konar vanskilum á móti 12 prósent fullorðinna. Það er töluverð breyting frá árunum eftir efnahagshrun þar sem hlutfall barna sem bjuggu á heimilum í einhvers konar vanskilum fór hæst í 28 prósent árið 2011 á móti 18 prósent fullorðinna.
Þriðjungur erfitt með að ná endum saman
Ríflega þriðjungur heimila á Íslandi, 36 prósent, áttu erfitt með að ná endum saman árið 2016 en það er talsverð fækkun frá 2011 þegar um helmingur heimila átti erfitt með að ná endum saman.
Með sama hætti gat um þriðjungur heimila, 33 prósent, ekki mætt óvæntum en nauðsynlegum útgjöldum árið 2016 án þess að grípa til sérstakra ráðstafana.
Um 60% heimila eru án barna
Samkvæmt niðurstöðum lífskjararannsóknarinnar voru sex af hverjum tíu heimilum án barna árið 2016, 17 prósent allra heimila voru heimili einstæðra karla, um 14 prósent heimili einstæðra kvenna og um 31 prósent samsett af tveimur eða fleiri fullorðnum einstaklingum. Þegar litið er til heimila með börn þá reyndust einstæðir foreldrar vera 7 prósent allra heimila en heimili sem samsett eru af tveimur eða fleirum fullorðnum ásamt börnum vera um 31 prósent.