Þurfum að virkja nýsköpun til að gera velferðarkerfin skilvirkari og ódýrari

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir segir að Íslendingar þurfi að finna leiðir til þess að viðhalda velferðarkerfum okkar með nýsköpun svo að öll aukin verðmætasköpun samfélagsins fari ekki í að greiða fyrir þau.

Auglýsing

Íslend­ingar þurfa að finna lausnir og hug­myndir að því hvernig sé hægt að gera vel­ferð­ar­kerfin okkar skil­virk­ari, not­enda­vænni og ódýr­ari svo það sé ger­legt fyrir Íslend­inga að við­halda þeim án þess að öll aukin verð­mæta­sköpun fari í að greiða fyrir þau. Þar er nýsköpun algjört lyk­il­at­riði.

Þetta segir Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, ferða­mála-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans, í sjón­varps­þætt­inum 21 sem frum­sýndur var í gær. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum í spil­ar­anum hér að ofan.

Þór­dís Kol­brún ræddi þar meðal ann­ars um hvernig nýsköpun sé nauð­syn­leg innan opin­bera kerf­is­ins. „Við erum í dag fimm manns að vinna á hvern eldri borg­ara, svona um það bil. Innan ekki svo langs tíma þá erum við komin niður í kannski tvo. Á sama tíma erum við með heil­brigð­is­kerfi sem ríkið póli­tísk sátt um að eigi að vera opið fyrir alla. Við erum búin að segja að það sé óháð efna­hag og öðru, þú átt aðgang hér að heil­brigð­is­kerf­inu. Þetta heil­brigð­is­kerfi okkar verður bara dýr­ara og dýr­ara.“

Auglýsing

Ástæður þess eru meðal ann­ars að lyf verða sífellt dýr­ari, sjúk­dómar grein­ast fyrr, og fólk lifir leng­ur. Þór­dís Kol­brún vill fjár­festa í fólki til að reyna að leysa þessar áskor­anir með opin­bera kerf­inu. Ríkið þurfi á aðstoð að halda til að við­halda vel­ferð­ar­kerf­inu. „Þá þurfum við að fá fólk þarna úti til að koma með allar þessar lausnir og hug­myndir að því hvernig við getum gert þetta kerfi skil­virkara, betra fyrir fólk sem þarf að nota það og ódýr­ara þannig að það sé okkur ger­legt, að það fari ekki bara öll aukin verð­mæta­sköpun sem við erum að reyna að búa til, að það fari ekki bara allt inn í vel­ferð­ar­kerfið sem okkur er mjög umhugað um að halda. Í þessu er nýsköpun algjört lyk­il­at­riði og mér finnst að við eigum að far að leggja miklu meiri áherslu á það.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent