Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 20,8% landsmanna og er stærsti stjórnmálaflokkurinn á Alþingi samkvæmt nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 3.-9. október. Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkaði um hálft prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 12. september.
Samfylkingin mældist með 16,7% fylgi sem er rúmum þremur prósentustigum minna en í síðustu mælingu. Píratar mældust með 12,7% fylgi sem er hálfu prósentustigi minna en í síðustu mælingu. Þá bætti Miðflokkurinn rúmu prósentustigi við fylgi sitt frá síðustu mælingum, og mælist nú með 11,9 prósent fylgi.
Stuðningur við ríkisstjórnina fer vaxandi en 47,5% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 41,1% í síðustu mælingu.
Fylgi Miðflokksins grænna mældist nú 11,9% og mældist 10,8% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,9% og mældist 11,1% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokks mældist nú 8,9% og mældist 8,1% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 8,6% og mældist 7,9% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 6,1% og mældist 5,3% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 3,2% samanlagt.
Upplýsingar um framkvæmdina:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR. Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma. Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR. Svarfjöldi: 921 einstaklingur, 18 ára og eldri.