Yfir 100 milljarða útlánavöxtur Landsbankans á árinu

Landsbankinn hagnaðist um 15,4 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins.

Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans
Auglýsing

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 15,4 millj­arða króna á fyrstu 9 mán­uðum árs­ins, en útlána­aukn­ing nam 112,4 millj­örðum króna, sem er um 12,1 pró­sent aukn­ing milli ára. Það er aukn­ing sem er umtals­vert umfram hag­vöxt, en spár gera ráð fyrir 3 til 4 pró­sent hag­vexti á þessu ári.

Íslenska ríkið er eig­andi bank­ans að mestu leyti, eða rúm­lega 98 pró­sent. Frá árinu 2013 hefur bank­inn greitt 131,7 millj­arða króna í arð.

Heild­ar­eignir Lands­bank­ans, sem að uppi­stöðu til eru útlán, juk­ust umtals­vert milli ára en þær nema nú 1.317 millj­örðum króna. Kostn­að­ar­hlut­fall bank­ans var á fyrr­nefndu tíma­bili 45 pró­sent. 

Auglýsing

Eigið fé bank­ans er 235,9 millj­arðar og eig­in­fjár­hlut­fallið 24,8 pró­sent. Lág­marks­eig­in­fjár­hlut­fall Fjár­mála­eft­ir­lits­ins er 20,5 pró­sent. 

Inn­lán hjá Lands­bank­anum hafa á þessu ári auk­ist um meira en 14,5 pró­sent, eða sem nemur um 87,5 millj­örðum króna. 

Efnahagur Landsbankans, og þróun milli ára.

Lilja Björk Ein­ars­dótt­ir, banka­stjóri Lands­bank­ans, fagnar rekstr­ar­nið­ur­stöð­unni, í til­kynn­ingu. „Á árinu hafa bæði útlán og inn­lán hjá bank­anum auk­ist umtals­vert og í ágúst síð­ast­liðnum styrkt­ist fjár­mögnun bank­ans enn frekar með útgáfu fyrsta víkj­andi skulda­bréfs­ins. Þessi útgáfa er mik­il­væg varða á leið bank­ans að yfir­lýstu 10% arð­sem­is­mark­miði en jafn­framt skiptir miklu máli að árangur af rekstri verði áfram góð­ur. Kostn­að­ar­hlut­fall bank­ans á fyrstu níu mán­uðum árs­ins er 45% og í krónum talið er kostn­aður áþekkur því sem hann var á sama tíma­bili árið 2017. Við munum áfram vinna að því að auka skil­virkni í rekstri og nýta öll tæki­færi til að draga úr kostn­að­i. Það sem af er ári og sér í lagi á þriðja árs­fjórð­ungi hefur staða á verð­bréfa­mörk­uðum verið erfið en fyrir því eru ýmsar ástæð­ur. Lands­bank­inn er við­skipta­vaki fyrir fjöl­mörg íslensk fyr­ir­tæki og stuðlar þannig að eðli­legri verð­myndum og selj­an­leika á mörk­uðum fyrir íslenska fjár­festa, hvernig sem árar. Á heild­ina litið er Lands­bank­inn í sterkri stöðu, með gott eigið fé, vel fjár­magn­aður og vel í stakk búinn til að takast á við breyt­ingar í umhverf­in­u,“ segir Lilja Björk. 

Rekstr­ar­tekjur Lands­bank­ans á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2018 námu 41,1 millj­arði króna sam­an­borið við 41,6 millj­arða króna á sama tíma­bili árið áður. Aðrar rekstr­ar­tekjur námu 3,8 millj­örðum króna sam­an­borið við 5,9 millj­arða króna á sama tíma­bili árið áður, sem er 36% lækk­un. Óhag­stæðar aðstæður á verð­bréfa­mörk­uðum eru helsta skýr­ing lækk­un­ar­inn­ar, segir í til­kynn­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent