Afkoma Arion banka undir væntingum en batnar milli ára

Bankastjóri Arion banka segir uppgjör bankans á þriðja ársfjórðungi markast af falli Primera Air.

Höskuldur Ólafsson
Auglýsing

Hagn­aður sam­­stæðu Ari­on banka á þriðja árs­fjórð­ungi 2018 nam 1,1 millj­­arði króna sam­an­­borið við 0,1 millj­­arðs króna tap á sama tíma­bili 2017. 

Fall Pri­mera Air hafði nei­kvæð áhrif á rekstur bank­ans, og þurfti hann að færa niður eignir vegna þess. 

Þetta er meðal þess sem kemur fram í til­kynn­ingu frá Arion banka vegna rekst­urs bank­ans á þriðja árs­fjórð­ungi. Arion banki er skráður á markað á Íslandi og í Sví­þjóð.

Auglýsing

Afkoman er sögð undir vænt­ing­um.

Arð­semi eig­in fjár var 2,3 pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungi, sem telst lítil arð­semi í alþjóð­legum sam­an­burði. Nei­­kvæða arð­semi var upp á 0,2% á sama tíma­bili árið 2017.

Heild­­ar­­eign­ir námu 1.219,5 millj­­örðum króna í lok sept­­em­ber 2018, sam­an­­borið við 1.147,8 millj­­arða króna í árs­­lok 2017 og eigið fé hlut­hafa bank­ans nam 199,3 millj­­örðum króna, sam­an­­borið við 225,6 millj­­arða króna í árs­­lok 2017. Ari­on banki greiddi 10 millj­­arða króna í arð í lok sept­­em­ber 2018.

Eig­in­fjár­­hlut­­fall bank­ans var 21,7% í lok sept­­em­ber en var 24,0% í árs­­lok 2017. 

Í til­kynn­ingu frá bank­anum segir Hösk­uldur Ólafs­son, banka­stjóri, að félagið sé nú með dótt­ur­fé­lagið Valitor í sölu­ferli, og unnið sé að því í sam­starfi við erlendan fjár­fest­inga­banka. „Va­litor heldur áfram að vaxa erlendis en fyr­ir­tækið býður við­skipta­vinum sínum á Norð­ur­löndum og í Bret­landi fjöl­breyttar lausnir á sviði greiðslu­miðl­un­ar. Stefnu­mótun varð­andi fram­tíð­ar­eign­ar­hald Valitor er lokið og vinnur bank­inn að því að fá til liðs við sig alþjóð­legan fjár­fest­ing­ar­banka til að aðstoða við sölu félags­ins, að hluta eða í heild. Gera má ráð fyrir að ákvörðun um næstu skref verði kynnt á næst­unn­i,“ segir Hösk­uldur í til­kynn­ingu.

Í til­kynn­ingu bendir Hösk­uldur einnig á að innan Arion banka hafi verið unnið ötul­lega að jafn­rétt­is­mál­um, bæði hvað varðar launa­stefnu og kynja­hlut­föll í stjórn, og sé staðan nú þann­ing, að bank­inn sé í fremstu röð sam­bæri­legra fyr­ir­tækja á Norð­ur­lönd­um. „Á und­an­förnum árum hefur verið rík áhersla á jafn­rétt­is­mál innan bank­ans með góðum árangri. Arion banki varð nýverið fyrsti bank­inn og jafn­framt eitt stærsta fyr­ir­tækið sem fengið hefur heim­ild til að nota Jafn­launa­merki vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. Arion banki inn­leiddi fyrst jafn­launa­kerfi í starf­semi sína árið 2015 og fékk í kjöl­farið Jafn­launa­vottun VR. Jafn­launa­kerfið er mik­il­vægt stjórn­tæki og stuðlar að því að starfs­fólki, sem vinnur jafn­verð­mæt störf, sé ekki mis­munað í laun­um. Við höfum einnig unnið að því að jafna kynja­hlut­föll í stjórn­enda­hópi bank­ans. Nú þegar bank­inn hefur verið skráður í kaup­höll­ina í Stokk­hólmi þá er ánægju­legt að sjá að við erum nokkuð fram­ar­lega á þessu sviði miðað við önnur félög í þeirri kaup­höll. Á nýjum lista sem gef­inn er út af All­Bright, sem er sænsk stofnun sem hefur það meg­in­mark­mið að stuðla að auknu jafn­rétti í við­skipta­líf­inu, er Arion banki í 17. sæti af 329 fyr­ir­tækj­um, sem eru skráð í kaup­höll­inni í Stokk­hólmi, þegar kemur að jöfnum hlut­föllum kynj­anna í hópi stjórn­enda. Við munum halda áfram á þess­ari braut með það að mark­miði jafna enn frekar stöðu kynj­anna innan bank­ans,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent