Magnús Sch. Thorsteinsson, forstjóri Klakka undanfarin sjö ár, hyggst láta af störfum forstjóra félagsins frá og með næstu áramótum. Magnús tilkynnti stjórn Klakka þetta nýverið og eru starfslokin í góðri sátt við stjórn og hluthafa félagsins.
„Ég lít ánægður um öxl og tel að starfsmenn geti verið stoltir af þeim árangri sem fyrirtækið hefur náð á undanförnum árum. Ég hef verið forstjóri félagsins í sjö ár og mér finnst vera kominn tími til að skipta um vettvang og snúa mér að nýjum verkefnum. Mikið hefur áunnist á undanförnum árum. Við höfum endurskipulagt, byggt upp og selt eignir og fengið mjög gott endurgjald fyrir þær. Ljóst er að afraksturinn er langt umfram þær heimtur sem gert var ráð fyrir í nauðasamningi félagsins árið 2010. Framundan er stefnumótun fyrir Lykil fjármögnun hf., en fyrir liggur endurskilgreina og efla enn frekar starfsemi félagsins áður en efnt verður til nýs söluferlis. Hefst sú vinna fljótlega. Ég hef ákveðið að farsælt sé að leiðir skilji á þessum tímamótum og vil þakka bæði starfsfólki Klakka og öðru samstarfsfólki fyrir ánægjulegt samstar,“ segir Magnús í fréttatilkynningu.
Klakki ehf. er eignarhaldsfélag í eigu innlendra og erlendra fjárfesta en félagið fór í gegnum nauðasamninga árið 2010. Lykill fjármögnun hf. er nú langstærsta eign Klakka en flestar aðrar eignir félagsins, s.s. hlutir í tryggingafélaginu VÍS og fjarskiptafyrirtækinu Skipti/Símanum, hafa verið seldar á síðustu árum. Heildar söluandvirði umræddra eigna nemur yfir 56 milljörðum króna, að því er segir í tilkynningu.