Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ákvað í dag að utanríkisráðuneytið myndi verja 100 milljónum króna til neyðaraðstoðar í Jemen.
Skiptist framlagið jafnt milli tveggja stofnana Sameinuðu þjóðanna sem eru í landinu og sinna neyðaraðstoð, annars vegar til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) og hins vegar til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF).
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.
„Neyðin er slík að hver mínúta skiptir máli. Við bregðumst við með auknum stuðningi við stofnanir á vettvangi, annars vegar til að sporna gegn yfirvofandi hungursneyð og hins vegar að úrbótum í vatnsmálum til að verjast útbreiðslu smitsjúkdóma,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra í tilkynningu.
Alvarlegt neyðarástand ríkir í Jemen og það hefur farið hríðversnandi á síðustu misserum, að því er fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.
„Styrjöldin hefur haft skelfilegar afleiðingar í för með sér og átökin eru meginástæða neyðarástandsins. Talið er að um 75 prósent íbúa landsins, eða ríflega 22 milljónir manna hafi bráða þörf fyrir mannúðaraðstoð. Hungursneyð vofir yfir 8 til 12 milljónum manna, 3 milljónir eru á flótta innanlands og þorri þjóðarinnar býr við vannæringu. Þá hefur kólera og aðrir smitsjúkdómar brotist út í landinu. Efnahagur Jemen er hruninn og innviðir eru í molum. Þá hefur sigið á ógæfuhliðina eftir að höfnum var lokað en það hefur leitt til mikilla verðhækkana á matvöru. Um 80% af innflutningi til landsins fer um höfnina í Hodeidah þar sem bardagar hafa geisað. Aðeins helmingur heilbrigðisstofnana landsins er starfandi og 16 milljónir manna hafa ekki aðgang að hreinu vatni og salernisaðstöðu sem aftur eykur líkurnar á útbreiðslu smitsjúkdóma,“ segir í tilkynningu utanríkisráðherra.