Origo selur hlut í Tempo fyrir 4,3 milljarða

Söluhagnaður Origo er um þrír milljarðar og hækkar virði eftirstandandi hlutar félagsins í Tempo um tvo milljarða í bókum félagsins.

Origo
Auglýsing

Origo, áður Nýherji, hefur skrifað undir kaup­samn­ing við félagið Diversis um sölu á 55 pró­sent hlut í dótt­ur­fé­lag­inu Tempo fyrir 34,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 4,3 millj­örðum króna. Heild­ar­verð­mið­inn á Tempo í þessum við­skiptum er því 62,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala eða um 7,7 millj­arðar króna miðað við núver­andi gengi krónu gagn­vart Banda­ríkja­dal. 

Í til­kynn­ingu til kaup­hallar segir Finnur Odds­son for­stjóri að þetta séu ánægju­leg tíð­indi fyrir Origo og Tempo, en bók­færður sölu­hagn­aður Origo er um þrír millj­arðar króna og sá eign­ar­hlutur sem félagið á í Tempo núna hækkar um tvo millj­arða í bókum félags­ins. 

Bæði Origo og Diversis munu leggja til tvær millj­ónir Banda­ríkja­dala í við­bót­ar­hlutafé til að styðja við frek­ari vöxt félags­ins. „Í þess­ari sölu á ríf­lega helm­ings­hluta Tempo felst við­ur­kenn­ing á frá­bæru starfi starfs­fólks Tempo og Origo síð­ustu ár.  Um leið eru verð­mæti íslensks hug­vits stað­fest áþreif­an­lega, en síð­ustu miss­eri hefur slíkt þró­un­ar­starf fengið aukna athygli og stuðn­ing stjórn­valda, sem er vel. Tempo hefur gengið vel und­an­farin ár, vaxið hratt og stendur nú styrkum fót­u­m.  Árs­tekjur félags­ins nema ríf­lega USD 20 millj­ónum og við­skipta­vinir eru ríf­lega 12.000 í yfir 120 lönd­um, þjónað af 100 manna sam­hentum hópi starfs­fólks í Reykja­vík og Montr­eal. Við fögnum því sér­stak­lega að fá Diversis til sam­starfs um að gera veg og vanda Tempo enn meiri, en sér­þekk­ing þeirra á sviði tækni, hug­bún­að­ar­þró­unar og mark­aðs­setn­ingar mun nýt­ast til að styrkja vöru­þróun og efla enn frekar tekju­vöxt á næstu árum. Með stuðn­ingi Diversis og Origo gerum við ráð fyrir að nú fari í hönd nýr kafli þró­unar og tekju­vaxtar hjá Tempo og að virði félags­ins geti auk­ist veru­lega á næstu miss­er­um.  Við höfum því lagt sér­staka áherslu á að Origo haldi áfram veru­legum eign­ar­hlut í félag­inu og teljum það reyndar eitt af mik­il­væg­ari hags­muna­málum hlut­hafa Origo," er haft eftir Finni í frétta­til­kynn­ing­u. 

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent