Til lítils að fjölga leikskólarýmum ef leikskólarnir standa ómannaðir

Sjálfstæðismenn telja áætlanir meirihlutans í borginni ekki ganga upp.

Eyþór Laxdal Arnalds
Auglýsing

Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks í borg­ar­stjórn telja mik­il­vægt að staðið verði við að fjölga leik­skóla­rýmum enda stefnt að því að tryggja 12 mán­aða börnum rými.

Í til­kynn­ingu frá Sjálf­stæð­is­flokknum í Reykja­vík segir Eyþór Arn­alds odd­viti það hins vegar til lít­ils að fjölga leik­skóla­rýmum ef leik­skól­arnir standa ómann­að­ir.

„Þrátt fyrir fögur fyr­ir­heit allt síð­asta kjör­tíma­bili voru biðlistar langir og börn gjarnan send heim vegna mann­eklu síð­asta vet­ur. Auk þess er veru­legur skortur á fag­mennt­uðu fólki í leik­skólum borg­ar­inn­ar. Það er því sá raun­veru­leiki sem þarf að hafa í huga við fram­kvæmd­ina. Eins mætti víkka sjón­deild­ar­hring­inn og leggja aukna áherslu á ráðn­ingu starfs­fólks með fjöl­breyttan bak­grunn sem gæti reynst þrosk­andi fyrir börn­in, t.d.  ­með bak­grunn í tón­list, íþróttum eða list­u­m,“ segir Eyþór í til­kynn­ingu.

Auglýsing

Leik­skóla­rýmum verður fjölgað um allt að 750  á næstu fimm árum til að hægt verði að bjóða öllum börnum tólf mán­aða og eldri pláss á leik­skóla fyrir lok árs 2023, en meiri­hlut­inn í Reyka­vík kynnti þessi áform í gær.

„Á næstu fimm árum verða byggðir fimm nýir leik­skólar og reistar verða a.m.k. fimm við­bygg­ingar við leik­skóla þar sem er mikil eft­ir­spurn. Einnig verða opn­aðar nýjar leik­skóla­deildir í fær­an­legu hús­næði við fjóra leik­skóla strax á næsta ári. ­Settar verða á fót sér­út­búnar ung­barna­deildir við alla borg­ar­rekna leik­skóla sem hafa fjórar deildir eða fleiri. Það á við um 46 leik­skóla og stefnt er að því að þeir verði allir búnir sér­stakri ung­barna­deild fyrir árs­lok 2023,“ segir í til­kynn­ingu borg­ar­inn­ar.

Eyþór bendir í til­kynn­ingu Sjálf­stæð­is­manna jafn­fram­t á að fimm ára fjár­hags­á­ætlun frá síð­asta ári hafi verið veru­lega van­á­ætl­uð, og því gangi áform meiri­hlut­ans ekki upp.

„Ekki er hægt að láta hjá líða að nefna að for­eldrar sumra barna á leik­skóla­aldri eru ekki að fá leik­skóla­rými fyrir börn sín í þeim hverfum þar sem þau eru búsett. Það eitt og sér er áhyggju­efni hjá for­eldrum barn­anna enda getur slík staða haft áhrif á félags­leg tengsl barn­anna í hverf­inu. Það er ekki nóg að gera ráð fyrir stein­steypu til að brúa bil­ið. Það þarf að vinna mark­visst að því að tryggja fag­lega mönnun sem of lengi hefur verið í ólestri,“ segir hann.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent