Fjölmiðlanefnd hefur lagt stjórnvaldssekt upp á eina milljón króna á Ríkisútvarpið vegna kostunar á dagskrárliðnum Saga HM á RÚV og vegna ófullnægjandi birtingar gjaldskrár fyrir auglýsingar og kostanir í tengslum við heimsmeistaramót karla í knattspyrnu, HM 2018 á RÚV. Þetta kemur fram á vefsíðu nefndarinnar.
Í niðurstöðu fjölmiðlanefndar kemur fram að Ríkisútvarpinu hafi verið óheimilt að kosta þáttaröðina Saga HM, sem sýnd var á RÚV á fjögurra mánaða tímabili í aðdraganda HM 2018. Teljist þáttaröðin ekki falla undir lögbundnar undantekningar frá banni við kostun dagskrárefnis á RÚV og hafi Ríkisútvarpið því með kostun þáttanna brotið gegn 2. mgr. 7. gr. laga um Ríkisútvarpið.
Þá hafi birting gjaldskrár fyrir auglýsingar og kostanir í tengslum við HM 2018 á RÚV verið ófullnægjandi og farið í bága við 5. mgr. 7. gr. laga um Ríkisútvarpið. Fram kemur að Ríkisútvarpið hafi samþykkt að gæta betur að samræmdri birtingu framvegis, þar með talið á vef félagsins, og hafi þegar gert viðeigandi úrbætur varðandi birtingu gjaldskrár fyrir auglýsingar og kostanir á vefnum.
Í tilkynningu RÚV varðandi málið kemur fram að fjölmiðlanefnd hafi komist að lokaniðurstöðu vegna nokkurra kvartana Símans sem nefndin hefur haft til umfjöllunar frá því í vor. Niðurstaðan hafi verið sú að öllum helstu kvörtunum fyrirtækisins yfir RÚV, sem fjallað var um í fjölmiðlum í sumar, sé vísað frá og sé það í samræmi við frummat Samkeppniseftirlitsins.
Segir jafnframt að ekki sé tekið undir ásakanir Símans um að RÚV hafi beitt óeðlilegum aðferðum við sölu auglýsinga á HM í sumar. Þannig sé hafnað ávirðingum um óeðlileg skilyrði fyrir lágmarkskaupum, kröfu um önnur viðskipti eða bindingu út árið. Einnig sé hafnað ásökunum um að viðskiptalegar forsendur auglýsingasölu stjórni dagskrá RÚV.
Fjölmiðlanefnd gerir hins vegar athugasemd við framsetningu verðskrár í tengslum við viðburði. Í tilkynningunni kemur enn fremur fram að RÚV hafi þegar brugðist við og breytt framsetningu á vefsíðu sinni til samræmis við ábendingar nefndarinnar. Þá kemst fjölmiðlanefnd að þeirri niðurstöðu að þáttaröðin Saga HM flokkist ekki sem „afleidd dagskrá“ af mótinu, eins og RÚV taldi vera, heldur sem sjálfstæður þáttur sem hafi verið ótengdur HM-útsendingunum.
RÚV lýtur ákvörðun fjölmiðlanefndar
„Þetta er þrengri túlkun laganna en RÚV hefur talið. RÚV lýtur þó vitaskuld þessari ákvörðun fjölmiðlanefndar enda er mikilvægt að skýrar leikreglur gildi um viðkvæmt hlutverk RÚV á auglýsingamarkaði.
Minnt skal á að þó að útvarpsgjaldið standi undir hluta af starfsemi RÚV er fyrirtækinu einnig ætlað, sem fyrr, að sækja um það bil þriðjung tekna sinna til sölu auglýsinga með þeim fjölmörgu takmörkunum sem því hafa verið settar á síðustu árum,“ segir í tilkynningunni.
Útvarpsstjóri sáttur við niðurstöðuna
Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri segist vera sáttur við þessa niðurstöðu. „Fjölmiðlanefnd tekur undir túlkun RÚV í öllu helsta umkvörtunarefni Símans. Í því felst viðurkenning á mikilvægri stöðu RÚV á fjölmiðlamarkaði. Við leggjum áherslu á að fylgja þeim reglum sem gilda um þennan þátt starfseminnar rétt eins og starfsfólk RÚV tekur hlutverk sitt í almannaþjónustu alvarlega. Megináherslan í starfsemi RÚV er að upplýsa, fræða og skemmta með sérstaka áherslu á menningu þjóðarinnar og íslenska tungu. Undanfarið höfum við skerpt enn frekar á almannaþjónustuhlutverki okkar með því að efla menningarhluta RÚV og auka úrval og gæði efnis fyrir ungt fólk með KrakkaRÚV og RÚV núll. Samhliða höfum við aukið vægi dýpri umræðu og fréttaskýringa,“ segir hann.
Hann segir það enn framur vera jákvætt að mennta- og menningarmálaráðherra hafi boðað aukinn stuðning við einkarekna fjölmiðla og að RÚV vilji eiga í gjöfulu samstarfi við þá og sjálfstæða framleiðendur. „Í þeim tilgangi höfum við gert aðstöðu okkar aðgengilega öllum þessum aðilum og bjóðum aðstoð við að miðla íslensku efni þeirra í alþjóðlega dreifingu. Íslenskir fjölmiðlar, og menning þjóðarinnar í heild sinni, eiga nú í sameiginlegri samkeppni við erlendar efnisveitur og alheimsrisa sem bjóða gríðarlegt magn afþreyingar á erlendri tungu. Á sama tíma soga þessir erlendu miðlar ætíð stærri hluta af því auglýsingafé sem er í umferð í hverju landi. Á slíkum tímum er mikilvægara en nokkru sinni að við stöndum saman og bjóðum upp á framúrskarandi efni þar sem okkar sögur eru sagðar á okkar tungumáli.
Við viljum fjölbreytta flóru einkarekinna miðla um leið og mikill meirihluti þjóðarinnar er sammála um að öflugt Ríkisútvarp sé mikilvægt akkeri í íslenskri menningu og samfélagslegri umræðu,“ segir Magnús Geir.