Flosi Eiríksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands. Hann tekur við starfi Drífu Snædal en hún var kjörin forseti Alþýðusambands Íslands í október. Ráðningarferlið var í höndum Capacent en alls bárust 17 umsóknir um stöðuna.
Í tilkynningu frá Starfsgreinasambandinu segir að Flosi búi að víðtækri reynslu úr atvinnulífinu, hann er húsasmiður og viðskiptafræðingur að mennt. Undanfarin ár hefur hann starfað hjá Íslandsstofu við fræðslu og ráðgjöf. Áður starfaði hann m.a. hjá ráðgjafarfyrirtækinu KPMG um 10 ára skeið og sem húsasmiður hjá ýmsum aðilum.
Flosi býr einnig að fjölbreyttri reynslu af félagsmálum, m.a. setu í bæjarstjórn Kópavogs frá 1998 til 2010 auk setu í ýmsum nefndum og ráðum fyrir sveitarfélög og ráðuneyti. Þess utan hefur hann tekið þátt í margvíslegu öðru félagsstarfi samkvæmt tilkynningunni.