Landsbankinn hf. hefur selt 9,2 prósent eignarhlut í Eyri Invest hf. í opnu söluferli en frestur til að skila inn tilboðum í söluferlinu var til klukkan tólf á hádegi miðvikudaginn 28. nóvember síðastliðinn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Þegar Kjarninn hafði samband við Landsbankann vildi hann ekki greina frá því hver kaupandinn væri.
Landsbankinn auglýsti opið söluferli á allt að 12,1 prósent eignarhlut sínum í fjárfestingafélaginu Eyri Invest hf. þann 6. nóvember síðastliðinn en bankinn átti fyrir söluferlið 22 prósent hlut í félaginu.
Í tilkynningunni segir að söluferlið hafi farið fram í samræmi við stefnu Landsbankans um sölu eigna og hafi verið öllum opið sem teljast vera hæfir fjárfestar samkvæmt skilgreiningu laga um verðbréfaviðskipti. Lágmarksgengi sem fjárfestar gátu boðið í söluferlinu var 41,80 krónur á hvern hlut í Eyri Invest.
Landsbankinn tók fjórum tilboðum af fimm sem bárust í 91.509.035 hluti í Eyri Invest. Allir hlutirnir voru seldir á sama sölugengi sem var 42,845 krónur á hvern hlut. Tilboði sem var undir sölugengi var hafnað. Söluandvirði hlutanna nemur um 3,9 milljörðum króna.