„Þau sem stjórna þessu landi vilja taka sér langt og gott jólafrí“

Formaður Eflingar segir að tíminn til viðræðna um boðlega lausn á kjaradeilum hafi ekki verið vel nýttur undanfarin misseri. Hún telur íslenska verkalýðsbaráttu hafa verið staðnaða árum saman.

Auglýsing

„Ég trúi ekki öðrum en að fólk taki þessu mjög alvar­lega og leggi sig allt fram um að ein­beita sér að þessu verk­efni. En það er auð­vitað mjög margt annað sem athyglin bein­ist að. Svo veit ég líka að þau sem stjórna þessu landi vilja taka sér langt og gott jóla­frí. Þannig að við sjáum hvað ger­ist. En við erum alla­veg­anna á fullu.“ Þetta segir Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­maður Efl­ing­ar, þegar hún er spurð hvort að hún sé von­góð um að samn­ingar náist á vinnu­mark­aði áður en kjara­samn­ingar renna út í lok þessa mán­að­ar.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans, við hana í þætt­inum 21 sem sýndur er á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut. Hægt er að sjá stiklu úr við­tal­inu hér að neð­an.

Hún segir að tím­inn und­an­farin miss­eri hafi ekki verið vel nýttur til að reyna að finna við­un­andi nið­ur­stöðu. „Við í Efl­ingu höfum á móti ákveðið að nýta okkar tíma mjög vel. Þar sem við erum ann­ars vegar að vinna þessa vinnu sem snýr beint að þessum kjara­samn­inga­mál­um. En svo erum við líka að heyja okkar bar­áttu á öðrum víg­stöðv­um.[...]að miðla okkar boð­skap til sem flest­ar. Og ég ætla bara að fá að segja að þessi könnun sem nið­ur­stöð­urnar birt­ust úr í gær, sem snýr að almennu sam­þykki íslensks almenn­ings á því að verk­föll séu rétt­læt­an­leg, ég ætla að trúa því að okkar vinna í því að kynna að lífs­kjör og kynna til­veru lág­launa­fólks á Íslandi fyrir almenn­ingi. Að þarna séum við að upp­sker­a.“

Auglýsing
Aðspurð um hvenær verk­falls­að­gerðir gætu mögu­lega hafist, ef til þeirra kæmi, segir Sól­veig Anna að hún og félagar hennar taki þessa bar­áttu mjög alvar­lega og vilji vanda sig. „Og við áttum okkur líka á því hversu stöðnuð íslensk verka­lýðs­bar­átta hefur verið und­an­farið og hversu lengi hún hefur hjakkað í sama far­inu þá sé löngu tíma­bært að end­ur­hugsa hvernig við sjáum fyrir okkur aðgerð­ir. Á Íslandi eru öll verka­lýðs­mál nið­ur­njörvuð í lag­ara­mma og allt spil­ast eftir mjög föstum regl­um. Þetta er hefð sem byggir á því að það sé eitt­hvað rétt­læti í sam­skiptum atvinnu­rek­enda og vinnu­aflsins. En svo þegar kap­ít­al­ism­inn skiptir um gír og keyrir sig inn í nýfrjáls­hyggj­una  og alþjóða­væð­ing­una með öllu því upp­námi sem því fylgir fyrir vinnu­aflið þá þarf vinnu­aflið líka að end­ur­hugsa hvernig það á að berj­ast.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent