Tekjuafkoma hins opinbera var jákvæð um 13,9 milljarða í fyrra

Árið 2017 var tekjuafkoma hins opinbera jákvæð um 13,9 milljarða króna. Ef bornir eru saman fyrstu þrír ársfjórðungar 2018 við 2017 þá hafa tekjur ríkissjóðs aukist um 4,7 prósent og útgjöld 3,8 prósent.

Stjórnarráð Ríkisstjórn
Auglýsing

Tekju­af­koma hins opin­bera var jákvæð um 13,9 millj­arða króna árið 2017, eða sem nemur 0,5 pró­sent af lands­fram­leiðslu. ­Tekjur hins opin­bera námu um 1.146,5 millj­örðum króna árið 2017 en útgjöld voru 1.132,6 millj­arð­ar­. Hrein pen­inga­leg eign hins opin­bera var nei­kvæð um 526 millj­arða króna í árs­lok 2017 eða 20,1 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu. Þetta kemur fram í Hag­tíð­ind­un­um fjár­mál hins opin­ber­a. 

Í fyrra námu heil­brigðis­út­gjöld hins opin­bera 538 þús­undum króna á mann

Mynd: Birgir Þór HarðarsonHeild­ar­út­gjöld til heil­brigð­is­mála voru 223,9 millj­arður króna árið 2017 eða 8,6 pró­sent af lands­fram­leiðslu. Þar af var hlutur hins opin­bera 184,9 millj­arðar króna en hlutur einka­að­ila 38,9 millj­arðar eða 17,4 pró­sent. Á mann námu heil­brigðis­út­gjöld hins opin­bera 538,5 þús­undum króna og hækk­uðu um 1,1 pró­sent  frá fyrra ári. 

Frá árinu 2012 hafa opin­ber heil­brigðis­út­gjöld á mann auk­ist um 11,2 pró­sent en eru enn 5 pró­sent lægri en árið 2008, þegar opin­ber heil­brigðis­út­gjöld á mann mæld­ust hæst. 

Auglýsing

Til fræðslu­mála var ráð­stafað 191,2 millj­örðum króna árið 2017 eða sem nemur 7,3 pró­sent af lands­fram­leiðslu. Þar af var fjár­mögnun hins opin­bera 173,4 millj­arðar króna og hlutur heim­il­anna um 17,8 millj­arðar króna eða 9,3 pró­sent. Á mann námu fræðslu­út­gjöld hins opin­bera 505 þús­und krónum og dróg­ust saman um 0,6 pró­sent að raun­gildi frá fyrra ári. 

Tekjur rík­is­sjóðs juk­ust um 4,7 pró­sent á milli ára 

Þegar fyrstu níu mán­uðir árs­ins 2018 eru bornir saman fyrstu níu mán­uði árs­ins 2017 þá benda bráða­brigða­tölur til þess að tekjur rík­is­sjóðs hafi auk­ist um 4,7 pró­sent en á sama tíma hafi útgjöld auk­ist um 3,8 pró­sent. Í ár var tekju­af­koma hins opin­bera var 40,1 millj­arður á þessu tíma­bili en 33 millj­arðar árið 2017. Tekju­af­koma fyrstu níu mán­uði árs­ins er því 7,1 millj­arð meiri en árið á und­an.

Tekju­af­koman jákvæð um 1,8 millj­arða á fyrstu níu mán­uðum árs­ins

Tekju­af­koma hins opin­bera eru 1,8 millj­arðar króna fyrstu níu mán­uði árs­ins. Nam tekju­af­gang­ur­inn 0,2 pró­sent af lands­fram­leiðslu árs­fjórð­ungs­ins eða 0,6 pró­sent af heild­ar­tekjum hins opin­ber­a. 

Áætlað er að skattar og ­trygg­ing­ar­gjöld hafi skilað rík­is­sjóði um 190,5 millj­örðum króna á 3. árs­fjórð­ungi 2018, eða sem nemur 87,9 pró­sent tekna hans. Er það aukn­ing um 6,4 pró­sent frá sama tíma árið 2017. Á gjalda­hlið rík­is­sjóðs eru umfangs­mestu útgjalda­lið­irnir fjár­fram­lög til almanna­trygg­inga, launa­kostn­að­ur, kaup á vöru og þjón­ustu og vaxta­gjöld. Magn­breyt­ing sam­neyslu rík­is­sjóðs mæld­ist 2,6 pró­sent á 3. árs­fjórð­ungi 2018 en á sama tíma 2017 var hún 2,2 pró­sent

Heild­ar­tekjur hins opin­bera juk­ust um 6,0 pró­sent á 3. árs­fjórð­ungi 2018 í sam­an­burði við 3. árs­fjórð­ung 2017. Á sama tíma var aukn­ing í heild­ar­út­gjöldum hins opin­bera 6,8 pró­sent. Útgjalda­aukn­ingin skýrist helst af hærri launa­kostn­aði og auk­inni fjár­fest­ingu. Magn­breyt­ing sam­neyslu hins opin­bera á 3. árs­fjórð­ungi frá sama tíma árið áður var 3,4 pró­sent. 



Heild­ar­skuldir rík­is­sjóðs námu 1.583 millj­örðum króna í lok 3. árs­fjórð­ungs 2018 sem sam­svarar 56,8 pró­sent af áætl­aðri lands­fram­leiðslu árs­ins. Hrein pen­inga­leg eign rík­is­sjóðs, þ.e. pen­inga­legar eignir umfram skuld­ir, var nei­kvæð um 321 millj­arð króna í lok árs­fjórð­ungs­ins en það sam­svarar 11,5 pró­sent af áætl­aðri lands­fram­leiðslu árs­ins. Hrein pen­inga­leg eigna­staða rík­is­sjóðs hefur batnað um 353 millj­arða króna milli 3. árs­fjórð­ungs 2017 og 2018. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent