Cohen: Trump vissi vel að þetta var rangt

Lögmaður Donalds Trumps Bandaríkjaforseta hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi, meðal annar fyrir að beita sér fyrir ólöglegum greiðslum til að þagga niður umræðu um framhjáhald Trumps.

MichaelCohen
Auglýsing

Mich­ael Cohen, fyrr­ver­andi lög­maður Don­alds Trumps, Banda­ríkja­for­seta, full­yrðir að Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti hafi vitað af því, að greiðslur sem inntar voru af hendi, til að þagga niður umfjöllun um sam­band hans við tvær kon­ur, hafi verið ólög­legar og að aðgerð­irnar væru „rang­ar“.

Cohen hefur verið dæmdur í þriggja ára fang­elsi, meðal ann­ars fyrir brot á skatta­lögum og lögum um fjár­mögnun stjórn­mála­starfs. Þá hlaut hann einnig dóm fyrir að hafa sagt Banda­ríkja­þingi ósatt.

Auglýsing


Cohen þarf að hefja afplánun fyrir 6. mar­s. 

Trump hefur sjálfur full­yrt að hann hafi ekki fyr­ir­skipað greiðsl­urn­ar, og segir að Cohen hafi alfarið séð um þessi mál sjálf­ur. „Hann er lög­fræð­ingur og á að þekkja lög­in,“ sagði Trump meðal ann­ars eftir að dóm­ur­inn hafði verið kveð­inn upp.

Öll spjót standa nú á Don­ald Trump en búist er við því að Robert Muell­er, sak­sókn­ari, sem rann­sakar tengsl Rússa við for­seta­fram­boð Trumps, muni ljúka rann­sókn sinni á næst­unni. Þá mun skýr­ast til fulls, hvaða efn­is­at­riði hafa verið til rann­sóknar og til hvaða aðgerða verður grip­ið.

Dag­blaðið LA Times segir í umfjöllun í dag, að Trump sé ein­angr­að­ari en hann hefur áður ver­ið, þar sem margir haf hans nán­ustu banda­mönnum hafa snúið við honum baki. Dóm­ur­inn yfir Cohen þykir áfall fyrir for­set­ann, þar sem hann stað­festir að greiðsl­urnar sem fóru fram, til að þagga niður umfjöll­un, hafi verið ólög­leg­ar. 

Trump hélt því fram fyrst, að engar greiðslur hafi átt sér stað. Síðan breytti hann sög­unni, en sagð­ist ekki hafa borið neina ábyrgð á greiðsl­un­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent