Frumvarp til laga um breytingu á lögum um utanríkisþjónustu Íslands er varðar skipun ráðuneytisstjóra og sendiherra hefur verið lagt fram. Fyrsti flutningsmaður er Björn Leví Gunnarsson en með honum eru níu þingmenn úr Samfylkingunni, Pítötum og Viðreisn.
Þingmennirnir vilja fella í burtu ákvæði í lögum sem heimilar undanþágu frá meginreglu laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins um að skylt sé að auglýsa laus störf hjá ríkinu þegar um skipun í störf ráðuneytisstjóra og sendiherra í utanríkisþjónustunni er að ræða.
Frumvarpið hefur verið lagt fram tvisvar sinnum áður af þingflokki Bjartrar framtíðar. Það er nú endurflutt og í greinargerð með frumvarpinu segir að það sé lagt fram í ljósi mikilvægis þess að störf hjá hinu opinbera séu auglýst og að ráðningarferlið einkennist af gagnsæi og jafnræði.
Í greinargerðinni kemur jafnframt fram að slík undanþága hafi í för með sér að ekki sé skylt að veita almenningi aðgang að upplýsingum um nöfn og starfsheiti umsækjenda eins og almennt gildir um opinber störf.
Kröfur um gagnsæi munu fela í sér aðhald
„Ákvæði laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins um auglýsingaskyldu byggjast á jafnræðissjónarmiðum um að veita beri öllum sem áhuga kunna að hafa tækifæri til að sækja um opinbera stöðu. Með opinberri auglýsingu er áhugasömum aðilum almennt veittur möguleiki til að leggja inn umsókn uppfylli þeir þau almennu hæfisskilyrði sem gilda um stöðuna. Þá byggist reglan á því sjónarmiði að með þeirri aðferð verði betur að því stuðlað en ella að ríkið eigi kost á sem flestum færum og hæfum umsækjendum þegar ráðið er eða skipað í stöðu.
Skyldan til að veita almenningi upplýsingar um umsækjendur um opinbert starf sé þess óskað byggist á sjónarmiði um gagnsæi við meðferð opinbers valds. Mikilvægt er að almenningur geti veitt skipunarvaldshafa aðhald um að hann gæti að framangreindum sjónarmiðum um jafnræði og hæfni þegar hann fer með það vald sitt fyrir hönd almennings og í hans þágu. Verði frumvarpið að lögum munu almennar heimildir skipunarvaldshafa til að setja málefnaleg skilyrði varðandi hæfni umsækjenda, með tilliti til eðlis starfanna og þeirrar ábyrgðar sem þeim fylgir, að sjálfsögðu eiga við eins og um önnur opinber störf. Kröfur um gagnsæi munu þá fela í sér aðhald á þá leið að á þessum sjónarmiðum sé raunverulega byggt við skipun viðkomandi aðila,“ segir í greinargerðinni.
Skipunarvald sendiherra og ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins pólitískt
Enn fremur kemur fram að hér á landi hafi tíðkast að skipunarvald sendiherra og ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins sé pólitískt og í höndum utanríkisráðherra hverju sinni. Ekki liggi fyrir skýr viðmið sem leggja skuli til grundvallar og sé skipunarferlið ógagnsætt. Hjá öðrum Norðurlandaþjóðum sé þessu öðruvísi háttað.
„Í Danmörku, Noregi og Finnlandi tíðkast ekki að einstaklingar sem ekki starfa þegar innan utanríkisþjónustunnar séu skipaðir í störf sendiherra án þess að staðan hafi áður verið auglýst laus til umsóknar. Almennt eru lausar stöður sendiherra auglýstar innan utanríkisþjónustunnar þannig að starfsmönnum hennar gefist kostur á að sækja um. Ákvörðun um skipun er svo tekin á grundvelli faglegs mats á hæfi, árangri og frammistöðu umsækjenda, jafnvel að undangenginni tillögu til ríkisstjórnar, konungsvalds eða forseta. Er því ljóst að mun skýrari viðmið eru þar um slíkar ákvarðanir en hér á landi.“
Um veigamikla almannahagsmuni að ræða
Í greinargerðinni segir að telja verði að þau sjónarmið sem búa að baki skyldunni til að auglýsa opinber störf og birta upplýsingar um umsækjendur sé þess óskað hafi mjög mikið vægi með tilliti til vandaðrar stjórnsýslu í þágu almennings, jafnræðis og gagnsæis við meðferð opinbers valds. Hér sé því um mjög veigamikla almannahagsmuni að ræða sem eigi jafnt við þegar skipað sé í stöður í utanríkisþjónustunni og endranær. Sendiherrar og ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins sinni afar mikilvægum störfum og verkefnum í þágu þjóðarinnar og því sé mjög mikilvægt að val í þau störf byggist á hæfni og að jafnræðis sé gætt. Þá skipti máli að ákvörðunarferillinn sé gagnsær og hafinn yfir vafa og tortryggni eins og hægt er. Frumvarpið sé liður í því að auka gagnsæi og aðhald í þessum efnum.
Gera megi ráð fyrir að þeir sem starfað hafa í utanríkisþjónustunni um árabil búi almennt þegar yfir hæfni og reynslu sem nauðsynleg er til að sinna störfum sendiherra og ráðuneytisstjóra. Um tilflutning slíkra aðila án auglýsingaskyldu muni með breytingunni gilda almennar reglur um tilflutning milli embætta hjá hinu opinbera líkt og hjá öðrum ráðuneytum. Við beitingu þessarar heimildar sé ráðherra þó sem endranær skylt að líta til hæfni þeirra sem skipaðir eru með tilliti til þarfa utanríkisþjónustunnar og annarra málefnalegra og lögmætra ástæðna sem gæta ber að við ráðningu og skipun í opinber störf og stöður.