Viðar Freyr Guðmundson, formaður Miðflokksfélags Reykjavíkur, hefur ákveðið að segja sig frá störfum fyrir Miðflokkinn þar sem hann hefur gegnt formennsku í stuttan tíma.
Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu á Facebook-síðu hans í dag en hann hefur sent bréf þess efnis til flokksfélaga sinna og hefur nú þegar tilkynnt þetta til stjórnar og trúnaðarmanna félagsins.
„Ég hef ákveðið að segja mig frá störfum með Miðflokknum eftir mikið hugarstríð. Konfekt og laufabrauð hjálpuðu mér að komast að þessari niðurstöðu. Ástæður þessa eru langvarandi óánægja með skipulagsleysi við stjórn flokksins og málefnastarf. Sem hefur kristallast t.d. í eftirmálum við Klaustursmálið og hvernig tekið var á þeim. Það vantar skýrari ábyrgðarkeðjur og lýðræðislegri ferla í starfið til að hægt sé að taka á erfiðum málum sem kunna að koma upp og eins til að reka hefðbundið lýðræðislegt flokkastarf,“ segir Viðar Freyr.
Hann segist jafnframt hafa tekið þátt í eða fylgst með hvernig ýmsir flokkar hagi starfi sínu og segir hann að því miður finnist honum vanta töluvert upp á að Miðflokkurinn sé á pari við suma aðra flokka þegar kemur að skipulagningu á málefnastarfi flokksins sem heild.
„Það var svo sem hægt að horfa fram hjá þessu til að byrja með þar sem flokkurinn var nýr og varla sanngjarnt að bera saman við flokka sem hafa starfað í nærri 100 ár. En ég sé ekki neina bót á þessu á sjóndeildarhringnum. Þannig að ég tel að minni orku sé betur varið að starfa utan flokka að sinni,“ segir hann.
Viðar Freyr segist óska flokksmönnum alls hins besta og vonist hann til að Miðflokkurinn nái sér á strik. „Jarðvegurinn fyrir þessum flokki er til staðar. Þykir leiðinlegt að þurfa að skilja við ykkur með þessum hætti. En ég held að í fyllingu tímans munum við öll sjá að það er fyrir bestu. Sérstakar þakkir vil ég senda til félaga minna í Miðflokksfélagi Reykjavíkur og borgarfulltrúum okkar, sem öll hafa unnið frábært og óeigingjarnt starf. Ég mun eflaust halda áfram að styðja þau með ýmsum hætti þar sem við eigum málefnalega samleið, beint eða óbeint.“
Ég hef ákveðið að segja mig frá störfum fyrir Miðflokkinn eða öllu heldur Miðflokksfélagið í Reykjavík þar sem ég hef...
Posted by Viðar Freyr Guðmundsson on Sunday, December 30, 2018