Segir sig frá störfum fyrir Miðflokkinn

Formaður Miðflokksfélags Reykjavíkur hefur sagt sig frá störfum fyrir flokkinn vegna langvarandi óánægja með skipulagsleysi við stjórn flokksins og málefnastarf.

Viðar Freyr Guðmundsson
Viðar Freyr Guðmundsson
Auglýsing

Viðar Freyr Guð­mund­son, for­maður Mið­flokks­fé­lags Reykja­vík­ur, hefur ákveðið að segja sig frá störfum fyrir Mið­flokk­inn þar sem hann hefur gegnt for­mennsku í stuttan tíma. 

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Face­book-­síðu hans í dag en hann hefur sent bréf þess efnis til flokks­fé­laga sinna og hefur nú þegar til­kynnt þetta til stjórnar og trún­að­ar­manna félags­ins. 

„Ég hef ákveðið að segja mig frá störfum með Mið­flokknum eftir mikið hug­ar­stríð. Konfekt og laufa­brauð hjálp­uðu mér að kom­ast að þess­ari nið­ur­stöðu. Ástæður þessa eru langvar­andi óánægja með skipu­lags­leysi við stjórn flokks­ins og mál­efna­starf. Sem hefur krist­all­ast t.d. í eft­ir­málum við Klaust­urs­málið og hvernig tekið var á þeim. Það vantar skýr­ari ábyrgð­ar­keðjur og lýð­ræð­is­legri ferla í starfið til að hægt sé að taka á erf­iðum málum sem kunna að koma upp og eins til að reka hefð­bundið lýð­ræð­is­legt flokka­starf,“ segir Viðar Freyr. 

Auglýsing

Hann seg­ist jafn­framt hafa tekið þátt í eða fylgst með hvernig ýmsir flokkar hagi starfi sínu og segir hann að því miður finn­ist honum vanta tölu­vert upp á að Mið­flokk­ur­inn sé á pari við suma aðra flokka þegar kemur að skipu­lagn­ingu á mál­efna­starfi flokks­ins sem heild. 

„Það var svo sem hægt að horfa fram hjá þessu til að byrja með þar sem flokk­ur­inn var nýr og varla sann­gjarnt að bera saman við flokka sem hafa starfað í nærri 100 ár. En ég sé ekki neina bót á þessu á sjón­deild­ar­hringn­um. Þannig að ég tel að minni orku sé betur varið að starfa utan flokka að sinn­i,“ segir hann. 

Viðar Freyr seg­ist óska flokks­mönnum alls hins besta og von­ist hann til að Mið­flokk­ur­inn nái sér á strik. „Jarð­veg­ur­inn fyrir þessum flokki er til stað­ar. Þykir leið­in­legt að þurfa að skilja við ykkur með þessum hætti. En ég held að í fyll­ingu tím­ans munum við öll sjá að það er fyrir bestu. Sér­stakar þakkir vil ég senda til félaga minna í Mið­flokks­fé­lagi Reykja­víkur og borg­ar­full­trúum okk­ar, sem öll hafa unnið frá­bært og óeig­in­gjarnt starf. Ég mun eflaust halda áfram að styðja þau með ýmsum hætti þar sem við eigum mál­efna­lega sam­leið, beint eða óbein­t.“

Ég hef ákveðið að segja mig frá störfum fyrir Mið­flokk­inn eða öllu heldur Mið­flokks­fé­lagið í Reykja­vík þar sem ég hef...

Posted by Viðar Freyr Guð­munds­son on Sunday, Decem­ber 30, 2018


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent