Skipulagsbreytingar hafa verið gerðar hjá Sýn hf., áður Vodafone, sem ætlað er að efla sölu og þjónustu og styrkja rekstur félagsins til framtíðar litið. Björn Víglundsson, sem leitt hefur miðla Sýnar, og Ragnheiður Hauksdóttir, sem hefur leitt einstaklingssvið Sýnar, hafa hætt störfum og heyra nú sviðin undir Stefán Sigurðsson, forstjóra félagsins.
Breytingarnar eru sagðar liður í að einfalda reksturinn og stytta boðleiðir innan fyrirtækisins. Tveir stjórnendur láta af störfum í kjölfar breytinganna.
Samkvæmt tilkynningu félagsins til kauphallar þá felast skipulagsbreytingarnar í því að einstaklingssvið og fyrirtækjasvið verða rekin sem tvö sjálfstæð svið undir sölu og þjónustu, sem heyra mun beint undir forstjóra. Einingar Miðla munu einnig heyra beint undir forstjóra eftir þessar breytingar, en munu að öðru leyti ekki breytast, samkvæmt fréttatilkynningu.
Þorvarður Sveinsson sem leitt hefur fyrirtækjasvið tekur við nýju hlutverki rekstrarstjóra. „Hann mun bera ábyrgð á rekstrarmálum þvert á fyrirtækið með það markmið að ná fram
aukinni skilvirkni og hagkvæmni í rekstri. Þessi breyting endurspeglar rekstraráherslur
félagsins og viðbrögð við áskorunum á fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði,“ segir í tilkynningu félagsins.
Elmar Hallgríms Hallgrímsson hefur verið ráðinn stjórnandi einstaklingssviðs, en þar fellur undir sala og þjónusta til einstaklinga sem og markaðsmál.
„Elmar hefur undanfarið sinnt
sérverkefnum fyrir Hagvang en var áður framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs hjá 365
miðlum ehf. Elmar var um árabil lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og annast nú
m.a. kennslu við MBA nám og lagadeild skólans. Hann er einnig þjálfari hjá Dale Carnegie.
Elmar er með LL.M gráðu frá University of Pennsylvania og embættispróf í lögfræði frá
Háskóla Íslands. Hann hefur lokið meistaranámi í fjármálum fyrirtækja og í viðskiptasiðfræði
frá Háskóla Íslands, auk þess að hafa lokið prófi í verðbréfasviðskiptum og hafa leyfi til að
starfa sem héraðsdómslögmaður.
Elmar hefur víðtæka reynslu af stjórnarsetu og var m.a. stjórnarformaður MBA náms og
viðskiptafræðistofnunar Háskóla Íslands,“ segir í tilkynningu félagsins.
Óhætt er að segja að Sýn hafi gengið í gegnum öldudali að undanförnu. Í fyrra lækkaði markaðsvirði félagsins mest allra félaga í kauphöllinni, eða um rúmlega 38 prósent. Þá hefur félagið sent frá sér afkomuviðvaranir á undanförnum mánuðum, meðal annars vegna minni tekna af auglýsinga- og áskriftarsölu fjölmiðlahluta félagsins.
Gert er ráð fyrir að rekstrarhagnaður þessa árs verði 3,9 til 4,4 milljarðar í stað 4,6 til 5 milljarðar samkvæmt fyrri áætlun. Þá er frestun á kostnaðarsamlegð upp á 200 milljónir sem gert var ráð fyrir á næsta ári, en ljóst er að mun ekki koma til fyrr en árið 2020. Þá er veiking krónunnar talin hafa 350 milljóna króna neikvæð áhrif á kostnað félagsins á næsta ári, að því er sagði í tilkynningu til kauphallar.