Vilhelm Már Þorsteinsson nýr forstjóri Eimskips

Formaður stjórnar er Baldvin Þorsteinsson, en hann er náfrændi nýja forstjórans. Eimskip er skráð á aðallista kauphallar Íslands, en Samherji er stærsti eigandi félagsins.

vilhelm_mar_thorsteinsson_forstjóri_eimskips.jpg
Auglýsing

Stjórn Eim­skipa­fé­lags Íslands hefur ráðið Vil­helm Má Þor­steins­son í starf for­stjóra félags­ins. Hann hefur störf 24. jan­úar næst­kom­andi. Vil­helm hefur verið fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja og fjár­festa­sviðs Íslands­banka hf. und­an­farin ár.

Starf for­stjóra var aug­lýst í byrjun des­em­ber á síð­asta ári og naut Eim­skip ráð­gjafar Hag­vangs við ráðn­ing­una, segir í til­kynn­ing­u. 

Vil­helm hefur starfað hjá Íslands­banka og Glitni í tutt­ugu ár og sinnt þar fjöl­breyttum og krefj­andi verk­efn­um, lengst af sem stjórn­andi og setið í fram­kvæmda­stjórn bank­ans. Í störfum sínum hefur hann öðl­ast víð­tæka þekk­ingu og reynslu á fjár­mála­mörk­uðum og í fyr­ir­tækja­rekstri, sem mun nýt­ast vel í nýju starfi hjá Eim­skip, segir í til­kynn­ingu.

Auglýsing

„Ég er þakk­látur fyrir það traust sem mér er sýnt til að leiða Eim­skip, sem er öfl­ugt fyr­ir­tæki í traustum rekstri. Þar bæt­ist ég í góðan hóp starfs­fólks og stjórn­enda sem hafa mikla reynslu af flutn­inga­starf­semi og ég hlakka til að starfa með. Ég hef átt frá­bær ár hjá Íslands­banka þar sem starf­semin hefur tekið stöð­ugum breyt­ingum í gegnum árin. Ég tek með mér mik­il­væga reynslu úr þeim störfum þegar ég sný mér nú að nýjum verk­efn­um, sem fela meðal ann­ars í sér að byggja upp starf­semi Eim­skips á þeim trausta grunni sem lagður hefur ver­ið,“ segir Vil­helm Már Þor­steins­son.

Bald­vin Þor­steins­son, for­maður stjórnar Eim­skips, fagnar ráðn­ing­unni og segir Vil­helm Má rétta mann­inn til að leiða saman fólk og ná árangri.

„Með ráðn­ingu Vil­helms fær Eim­skipa­fé­lagið öfl­ugan stjórn­anda sem hefur sýnt að hann kann að leiða saman fólk til að vinna sam­hent að settu marki og ná árangri. Eftir störf sín hjá Íslands­banka býr hann yfir inn­sýn og þekk­ingu á rekstri fyr­ir­tækja í síbreyti­legu og krefj­andi umhverfi ásamt því að búa yfir nauð­syn­legri fram­sýni til að leiða Eim­skip fram á veg­inn. Rétt er að taka fram við þetta til­efni að afar okkar Vil­helms voru bræður og feður okkar stofn­uðu saman útgerð­ar­fé­lagið Sam­herja ásamt föð­ur­bróður Vil­helms fyrir um 35 árum síð­an. Sem  ­kunn­ugt er skildu leiðir feðra okkar í við­skiptum fyrir 20 árum. Frá þeim tíma hafa ekki verið fjár­hags­leg­ir- eða við­skipta­legir hags­munir á milli okkar eða fjöl­skyldna okk­ar,“ segir Bald­vin.

Stærsti eig­andi Eim­skips er Sam­herji, en félagið á um fjórð­ungs­hlut í félag­inu, sem skráð er á aðal­l­ista kaup­hallar Íslands. Á und­an­förnum 12 mán­uðum hefur mark­aðsvirði félags­ins lækkað um 14 pró­sent, en í lok þriðja árs­fjórð­ungs í fyrra nam eigið fé félags­ins 242,5 millj­ónum evra, eða sem nemur um 33,4 millj­örðum króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent