Skuldabréfaeigendur WOW air hafa samþykkt að breyta skilmálum skuldabréfanna og liðkað þannig fyrir því að aðkoma Indigo Partners að rekstri WOW air geti átt sér stað. Frá þessu er greint á fjárfestasíðu WOW air.
Á meðal þeirra sem keyptu í útboðinu í fyrrahaust var félagið sjálft, stofnandinn og aðaleigandinn Skúli Mogensen og sjóðir á vegum bandaríska sjóðstýringarfyrirtækisins Eaton Vance.
Til greina kom að annað hvort að breyta kröfum skuldabréfaeigendanna í hlutafé áður en að Indigo Partners myndi ráðast í sína fjárfestingu í WOW air, eða að endursamið yrði um skilmála með þeim hætti að þeir féllu frá breytirétti á skuldabréfunum yfir í hlutafé og færðust þar með aftar í kröfuhafaröðina. Seinni kosturinn var samþykktur, sem þýðir að þeir eiga möguleika á því að fá höfuðstól fjárfestingar sinnar og vexti greidda. Skuldabréfaflokkurinn verður auk þess afskráður úr kauphöll.
Tilkynnt var um mögulega aðkomu Indigo Partners að WOW air í lok nóvember í fyrra. Greint hefur verið frá því að fjárfesting Indigo í WOW air verði aðallega í formi tíu ára breytilegs láns. Árlegir vextir verða greiddir í reiðufé kjósi Indigo að innheimta þá. Höfuðstóll lánsins og ógreiddir vextir verða greiðanlegir þegar lánstímanum lýkur.
Indigo Partners mun eignast 49 prósent í WOW air gangi áformin eftir. Félagið getur hins vegar eignast stærri hlut ef það ákveður að breyta lánum sínum í nýtt hlutafé í samræmi við ákvæði þeirra á lánstímanum.
Því liggur ekki fyrir hver heildarfjárfesting Indigo Partners í WOW air verður né hversu stóran hluta félagið mun eiga í WOW air til framtíðar. Verði fjárfesting Indigo Partners að veruleika þá mun heildar fjárfestingaupphæðin taka mið af fjárþörf WOW air í þeim viðsnúningi á rekstrinum sem stefnt er að á næstu misserum. Þetta sé í takt við þá langtímafjárfestingastefnu sem Indigo Partners hafi sýnt að félagið vinnur eftir þegar það hefur komið að rekstri flugfélaga. Það séu til að mynda 14 ár frá því að félagið fjárfesti í Wizz air, átta ár frá fjárfestingu í Volaris og fimm ár frá því að fjárfest var í Frontier Airlines.
Miklar sviptingar
Líkt og áður sagði var tilkynnt um það í lok nóvember síðastliðins að Indigo Partners hefði náð samkomulagi um fjárfestingu í WOW air.
13. desember var tilkynnt að vélum félagsins muni fækka enn frekar, og verði í nánustu framtíð ellefu eftir að hafa verið 24 fyrir nokkrum vikum síðan. Fjöldauppsagnir eru þegar hafnar hjá WOW air og hætt hefur verið við kostnaðarsöm flug, meðal annars til Indlands, en jómfrúarferð WOW air þangað var farin í byrjun desember 2018. Samkvæmt tilkynningu verður síðasta flug frá Nýju Delí 20. janúar næstkomandi og frá Los Angeles í Bandaríkjunum 14. janúar 2019.
Þann 14. desember var birt yfirlýsing á vef WOW air þar sem kom fram að fjárfesting Indigo Partners í félaginu gæti verið upp á allt að 75 milljónir dala, um 9,4 milljarða króna.
Þann 20. desember var greint frá því að félagið hefði selt flugtíma sína á Gatwick flugvelli í London í kjölfar endurskipulagningar á rekstri félagsins. Hvorki kaupverð né kaupandi var gefið upp samkvæmt tilkynningu þar sem um trúnaðarsamkomulag er að ræða.
Því mun WOW air hætta að fljúga til Gatwick frá 31. mars næstkomandi og eftir það fljúga eingöngu um Stansted flugvöll í borginni. Þá hefur félagið tilkynnt um að það muni hefja aftur flug til Edinborgar frá og með júnímánuði 2019.
Í byrjun árs var greint frá því að WOW air hafi þurft að fella niður flugferðir til minnst sex flugvalla vegna endurskipulagningar leiðakerfis og fækkun í flota. Þetta á við staði á borð við Los Angelels, San Francisco, Nýju Delí og Chicago en einnig hafa einstaka flug til Kaupmannahafnar, Mílanó og London verið felld niður. Ekki er vitað hversu margar ferðir hafa verið felldar niður í heildina.
WOW air tapaði alls 33,6 milljónum dala, sem jafngildir um 4,2 milljarði króna, á fyrstu níu mánuðum ársins 2018. Á sama tímabili 2017 nam tap félagsins 13,5 milljónum dala, jafnvirði tæplega 1,7 milljarða króna miðað við núverandi gengi. EBITDA félagsins fór úr því að vera jákvæð um 8,8 milljónir dala fyrstu níu mánuði ársins 2017 í að vera neikvæð um 18,9 milljónir dala í fyrra, sem er um 2,3 milljarða íslenskra króna.