Stjórn Neytendasamtakanna lýsir yfir áhyggjum af stöðu leigjendamála á Íslandi og lýsir yfir „furðu á samráðsleysi“ við samtökin í tengslum við tillögur átakshóps við vanda á húsnæðismarkaði.
Þetta kemur fram í ályktun frá stjórn samtakanna, sem Breki Karlsson, formaður, sendi frá sér.
Í henni segir að samtökin hafi um árabil veitt leigjendum ráðgjöf og aðstoð. Það hafi verið gert á grundvelli samnings frá 2011, við Velferðarráðuneytið. Nú hefur samningurinn runnið úr gildi, og það hafi ekki gengið að ná eyrum Ásmundar Einarsd Daðasonar ráðherra.
„Neytendasamtökin hafa um árabil sinnt ráðgjöf og lagalegri aðstoð við leigjendur ásamt almennri hagsmunagæslu. Samtökin hafa frá árinu 2011 gert árlegan samning við velferðarráðuneytið um ákveðna þætti þessarar þjónustu. Nú hefur samningur um leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna runnið úr gildi og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í heilt ár hafa samtökin ekki hlotið áheyrn ráðherra húsnæðismála með það fyrir augum að endurnýja samninginn. Samtökin hafa þó haldið áfram að aðstoða leigjendur í neyð. Mikil eftirspurn er eftir þjónustunni og er hún vel þekkt meðal fólks á leigumarkaði og leituðu á þriðja þúsund leigjenda til hennar árið 2017, þar af um fimmtungur erlendir ríkisborgarar. Það kom því á óvart að starfshópur stjórnvalda í húsnæðismálum skuli ekki hafa haft samráð við Neytendasamtökin við vinnu skýrslunnar. Þessi skortur á samráði, ásamt því að ekki hefur verið brugðist við óskum um endurnýjun samnings, eru nöturleg skilaboð til leigjenda á Íslandi,“ segir í ályktun stjórnar Neytendasamtakanna.